Skammar Mido fyrir ummæli sín 30. september 2006 22:30 Mido kom sér í vandræði með ummælum sínum um Sol Campbell, sem enn er kallaður Júdas á White Hart Lane síðan hann yfirgaf félagið á sínum tíma og gekk í raðir Arsenal NordicPhotos/GettyImages
Martin Jol var ekki par hrifinn af ummælum framherja síns Mido í dag, en í samtali við bresku slúðurblöðin sagði Egyptinn að Sol Campbell væri auðveldasti andstæðingur sem hann hefði mætt á knattspyrnuvellinum. Þessi ummæli framherjans hafa eflaust vakið gleði stuðningsmanna Tottenham, en Jol hefur aðrar hugmyndir um upphitun fyrir leik Tottenham og Portsmouth á morgun. Sol Campbell hefur verið frábær með liði Portsmouth í upphafi leiktíðar og hefur liðið verið rómað fyrir sterkan varnarleik með Campbell fremstan í flokki. Campbell hefur verið hataður á White Hart Lane í mörg ár eftir að hann kaus að fara frá Tottenham og ganga í raðir erkifjendanna í Arsenal á sínum tíma. "Ég talaði við Mido og sagði honum að ummæli hans væru ekki aðeins vanvirðing við mótherjann, heldur væri þetta mjög óábyrg hegðun. Maður segir ekki svona við mótherja sína og í ljósi þess hver staða Sol Campbell er á meðal stuðningsmanna okkar - voru orð Mido mjög óábyrg," sagði Martin Jol og óttast greinilega viðbrögð stuðningsmanna Tottenham þegar Campbell kemur í heimsókn á morgun, en hann hefur áður sagt að sér blöskri mjög hve langræknir stuðningsmenn Tottenham eru. Annars er það að frétta af liði Tottenham að búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov verður líklega klár í slaginn á morgun eftir meiðsli og sömu sögu gæti verið að segja af þeim Ledley King, Paul Stalteri, Edgar Davids og jafnvel Jermain Defoe.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Fleiri fréttir Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Sjá meira