Hættur viðræðum við Þrótt 20. september 2006 15:41 Ólafur Þórðarson liggur undir feldi þessa dagana og á von á að hans mál skýrist á næstu viku til tíu dögum Mynd/Valli
Ólafur Þórðarson, fyrrum þjálfari Skagamanna, staðfesti í samtali við NFS í dag að hann væri hættur viðræðum við knattspyrnudeild Þróttar og gaf þá skýringu að félagið hefði ekki verið tilbúið að veita nauðsynlegan tíma til að vinna úr sínum málum áður en hann gæfi svör um framhaldið. NFS hefur heimildir fyrir því að Ólafur hafi verið í viðræðum við Fram, en Ólafur segist vera í viðræðum við tvö félög og neitar að nokkuð upp um hver þau eru. "Það er lítið af mér að frétta annað en það að ég er búinn að gefa Þrótturum afsvar," sagði Ólafur í dag. "Viðræður voru komnar töluvert á leið, en þeim lá svo mikið á að fá svar og tímaramminn sem þeir gáfu mér var svo þröngur að ég varð hreinlega að gefa þeim afsvar. Ég er auðvitað að skoða aðra hluti líka, án þess að ég sé að gefa neitt upp um það," sagði Ólafur og sagðist vera í formlegum viðræðum við tvö önnur félög. Ólafur sagði í samtali við Þorstein Gunnarsson á NFS í gær að hann væri að íhuga að hætta þjálfun. "Ég er að vinna við fleiri hluti en knattspyrnuna og er þar með ýmislegt í gangi líka og ef hlutirnir taka ákveðna stefnu þar, gæti svo farið að ég setti bara þjálfaraferilinn á hilluna," sagði Ólafur. Eins og áður sagði hefur NFS heimildir fyrir því að Fram hafi átt í viðræðum við Ólaf Þórðarson um að gerast næsti þjálfari félagsins, nú þegar liðið er komið aftur í efstu deild - en Ólafur vill ekkert tjá sig um það. "Ég vil ekkert segja um það," sagði Ólafur, en viðurkenndi að hann væri til í að skoða hvað sem er. "Ég skoða allt áhugavert sem kemur upp á borðið. Ég var nú í viðræðum við ÍR og ekki er það lið í Landsbankadeildinni. Ég horfi mikið á umhverfið og vinnuaðstæður hjá þeim liðum sem til greina koma - því ef þetta er í lagi, er maður til í nánast hvað sem er;" sagði Ólafur.
Íslenski boltinn Innlendar Íþróttir Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira