Nýr yfirmaður Vodafone í Evrópu 5. september 2006 10:00 Merki Vodafone.
Vittorio Colao hefur verið ráðinn sem nýr yfirmaður farsímarisans Vodafone í Evrópu. Hann hefur störf í október. Colao tekur við að Bill Morrow, fyrrum yfirmanni Vodafone, sem lét af skyndilega af störfum hjá farsímarisanum af persónulegum ástæðum í júlí. Colao, sem er ítalskur, er forstjóri ítalska fjölmiðlafyrirtækisins RCS Media Group en hafði áður gegnt ýmsum stöðum hjá Vodafone. M.a. var hann yfirmaður farsímarisans á Ítalíu, í Suður-Evrópu, Miðausturlöndum og í Afríku. Auk starfsins hjá Vodafone mun Colao sömuleiðis taka við stöðu framkvæmdastjóra hjá fyrirtækinu af Julian Horn-Smith, sem sömuleiðis hætti störfum fyrir skömmu. Fjárfestar segja ráðningu Colaos jákvætt skref fyrir Vodafone og geti svo farið að hann taki við af Arun Sarin, forstjóra farsímarisans síðastliðin þrjú ár en Sarin hefur verið undir miklum þrýstingi vegna slakrar afkomu fyrirtæksins sem hefur haft áhrif á gengi hlutabréfa í farsímarisanum. Gengi hlutabréfa í Vodafone hækkuðu um 0,4 prósent í Kauphöllinni í Lundúnum í Bretlandi í dag vegna frétta um ráðninguna og standa nú í 114,5 pensum á hlut.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira