Stjórnarhernum á Srí Lanka um að kenna 30. ágúst 2006 12:30 MYND/AP
Yfirmaður norræna vopnahléseftirlitsins á Srí Lanka kennir stjórnarher landsins um morð á sautján alþjóðlegum hjálparstarfsmönnum fyrr í mánuðinum. Það var sjöunda ágúst sem fimmtán starfsmenn frönsku hjálparsamtakanna Action Against Hunger fundust myrtir í höfuðstöðvum samtakanna í bænum Muttur í norð-austur hluta landsins. Tveir starfsfélagar þeirra fundust svo myrtir í bíl skammt frá degi síðar. Ekki var víst á þeim tíma hvort stjórnarherinn eða uppreisnarmenn Tamíltígra hefðu staðið að baki morðunum. Norræna vopnahléseftirlitið sendi síðan í morgun frá sér yfirlýsingu þar sem stjórnarhernum er kennt um morðin. Þorfinnur Ómarsson, talsmaður eftirlitsins, segir þetta mat Ulfs Henrikssons sem segi herinn bera ábyrgð á ódæðunum. Ýmislegt bendi til þess og eingin rök hafi verið færð gegn því. Herinn hafi meinað fulltrúum eftirlitsins aðgang að svæðinu svo dögum skipti. Það bendi til þess að herinn hafi eitthvað að fela að mati Ulfs. Auk þess hafi herinn verið á svæðinu þegar ódæðin voru framin, það liggi fyrir. Varla sé því hægt að sjá að nokkur annar hafi framið ódæðin á þessu svæði nema með vitund og vilja stjórnarhersins. Stjórnvöld hafa neitað því að hafa átt þátt í morðunum og heitið ítarlegri rannsókn. Norræna eftirlitið hefur einnig komist að þeirri niðurstöðu að árás Tamíltígra á rútu sem varð nærri sjötíu að bana í júní hafi brotið gegn því vopnahlé sem sé í gildi. Stjórnvöldum er einnig kennt um röð svipaðara árása á svæðum uppreisnarmanna frá því í apríl.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Fleiri fréttir Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Sjá meira