Olíuverð lækkar frekar 28. ágúst 2006 16:04 Olíuvinnslustöð í Bandaríkjunum.
Heimsmarkaðsverð lækkaði um 2 bandaríkjadali og fór niður fyrir 71 dal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar fregna þess efnis að hitabeltisstormurinn Ernesto, sem nú nálgast suðurströnd Bandaríkjanna, fari framhjá olíuborpöllum við Mexíkóflóa. Styrkur Ernestos var í gær lækkaður úr fellibyl niður í hitabeltisstorm en hann var um hríð fyrsti fellibylurinn til að ríða yfir á þessu fellibyljatímabili, sem nú er að hefjast. Að sögn fellibyljamiðstöðvarinnar í Miami í Bandaríkjunum getur svo farið að Ernesto verði fellibylur á nýjan leik innan skamms. Hráolíuverð lækkaði um 1,91 dal á mörkuðum í Bandaríkjunum og fór í 70,60 dali á tunnu en verð á Norðursjávarolíu lækkaði um 1,64 dali og fór í 71,06 dali á tunnu á markaði í Bretlandi. Hráolíuverð hefur hækkað um 16 prósent það sem af er árs. Hæst fór það í 78,40 dali á tunnu um miðjan júlí eða um það leyti sem Ísraelsher gerði innrás inn í suðurhluta Líbanon.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Viðskipti innlent „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Viðskipti innlent Gengi Alvotech tekur kipp Viðskipti innlent Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Viðskipti innlent Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira