Einn lifði flugslysið af 27. ágúst 2006 18:58
Einn komst lífs af þegar flugvél frá Delta flugfélaginu með fimmtíu manns innanborðs hrapaði í Kentucky í Bandaríkjunum í dag. Flugvélin hrapaði skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í Lexington. Ekkert er sagt benda til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Flugvélin var af gerðinni Bombardier CRJ tvö hundruð, og í eigu Comair, undirfélags Delta flugfélagsina. Hún var á leið frá Blue Grass flugvelli í Lexington til Atlanta og hrapaði skömmu eftir flugtak. Fregnir herma að flugvélin hafi verið nokkuð heilleg eftir hrapið en þá hafi eldur kviknað í henni. Fjörutíu og sjö farþegar og þriggja manna áhöfn var um borð. Einn maður er sagður hafa sloppið lifani úr slysinu en hann mun vera mikið slasaður. Talsmaður samgönguyfirvalda í Bandaríkjunum segir ekkert benda til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Ekki liggur þó fyrir á þessari stundu hvað olli því að flugvélin hrapaði. Allt bendir til þess að þetta sé versta flugslys í Bandaríkjunum í tæp sex ár. Talsmaður lögreglunnar í Lexington segir verið að kanna hvort vélin hafi farið á loft á rangri flugbraut. Don Bornhorst, forstjóri Comair, staðfesti síðan á blaðamannafundi að einn hefði farist með flugvélinni. Comair keypti vélina í janúar 2001 og að sögn Bornhorst hafði hún verið yfirfarin samkvæmt reglum og haldið við eins og vera ber.
Erlent Fréttir Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fleiri fréttir Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Sjá meira