Beinhákarlar úti við Gróttu 25. ágúst 2006 16:32
Hópur kafara dýfði sér í sjóinn við hlið sex beinhákarla með gapandi ginið rétt utan við Gróttu í gær. Hákarlarnir eru þó ekki jafn hættulegir og þeir eru ógnvekjandi því þeir eru grænmetisætur. Það var ekki laust við að hjörtun slægju hraðar í sex köfurum sem stungu sér í sjóinn í gærkvöldi til fundar við beinhákarla sem syntu þar um með opið ginið í ætisleit. Hákarlarnir verða stærstir um 11 metra langir en kafararnir giskuðu á að hákarlarnir í gær hefðu verið um 8 til 10 metra langir og hátt í metra á milli skoltanna þegar þeir glenntu upp ginið. Köfurunum var þó engin hætta búin því að beinhákarlarnir nærast á plöntusvifi og höfðu lítinn áhuga á fersku mannakjöti. Hópar af beinhákörlum hafa undanfarið sést reglulega inni á Faxaflóanum og hafa hvalaskoðunarskip rekist á þá reglulega. Beinhákarlinn er í útrýmingarhættu en hann á sér fáa óvini aðra en manninn en kjötið og uggarnir eru rándýr matvara í Asíu.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira