Verðbreytingar ferðaskrifstofa ólögmætar 9. ágúst 2006 19:26
Ferðaskrifstofur gætu þurft að gera skýrari grein fyrir verðbreytingum sínum á næstunni eftir að Neytendastofa komst að því að hækkun fyrr á árinu vegna gengisbreytinga væri ólögmæt. Neytendasamtökin ráðleggja fólki sem hyggst skipta niður greiðslum vegna pakkaferða að gera það með fyrirvara þar til úrskurður áfrýjunarnefndar neytendamála liggur fyrir. Helstu ferðaskrifstofur landsins hækkuðu í vor verð á sumarferðum sínum og báru því við að gengi krónunnar hefði lækkað töluvert. Vísuðu þær þar til almennra ferðaskilmála hjá Samtökum aðila í ferðaþjónustu. Hækkanirnar voru meðal annars til ferða sem gengið var frá síðastliðinn vetur en voru ekki að fullu greiddar. Við þetta sætti einn af viðskiptavinum Heimsferða sig ekki við og kvartaði til Neytendastofu. Hún komst að þeirri niðurstöðu að Heimsferðir hefðu ekki farið að lögum um alferðir, eða pakkaferðir, þar sem ferðaskrifstofan hefði ekki tilgreint nákvæmlega í bæklingum eða með reikningi hvaða áhrif gengisbreytingar gætu haft á verð pakkaferða. Þeim úrskurði hefur verið áfrýjað til áfrýjunarnefndar neytendamála. Fjölmargir hafa haft samband við Neytendasamtökin í sumar vegna verðbreytinganna. Hildigunnur Hafsteinsdóttir, starfsmaður Neytendasamtakanna, segir úrskurðinn í raun aðeins ná til þess sem kvartaði en bíða verði endanlegs úrskurðar til að kanna hvort einhverjir eigi rétt á endurgreiðslu vegna verðhækkananna.
Fréttir Innlent Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira