Breyting Íbúðalánasjóðs gegn sáttmála 22. maí 2006 22:11 Kristinn H. Gunnarsson MYND/Vilhelm
Það brýtur í bága við stjórnarsáttmála að leggja Íbúðalánasjóð niður í núverandi mynd, í það minnsta meðan bankarnir bjóða ekki 90 prósenta lán, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.Kristinn skrifar um Íbúðalánasjóð og það sem hann kallar atlögu bankanna að honum í pistli á heimasíðu sinni. Þar segir Kristinn að níutíu prósenta lán Íbúðalánasjóðs hafi verið forgangsmál Framsóknarflokksins í síðustu kosningabaráttu. Áhersla flokksins á þetta mál hafi verið slík að það var sett í stjórnarsáttmála að lán yrðu allt að níutíu prósent upp að vissu marki. Þessum sáttmála sé ekki hægt að breyta nema með samþykki miðstjórnar Framsóknarflokksins, það geti ráðherrar ekki gert upp á eigin spýtur.Innan ríkisstjórnarinnar eru uppi hugmyndir um að breyta fyrirkomulagi Íbúðalánasjóðs þannig að hann láni ekki einstaklingum fyrir íbúðakaupum heldur verði bakhjarl bankanna sem sjái um almenn húsnæðislán. Þetta segir Kristinn að gangi ekki upp. Ástæðan sé einfaldlega sú að bankarnir uppfylli ekkert þeirra þriggja markmiða sem Íbúðalánasjóður byggi á, þau markmið séu 90 prósenta lán öryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðiskaupum og að vextir verði sambærilegir því sem er erlendis. Kristinn segir að meðan bankarnir uppfylli ekki þessi skilyrði megi stjórnvöld ekki hvika frá stuðningi við húsnæðislánakerfið og Íbúðalánasjóð.
Framsóknarflokkurinn Fréttir Innlent Ríkisstjórn Stj.mál Mest lesið Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Innlent Lést í sprengingunni Innlent Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Veður Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Innlent Íhugar að draga úr hernaði í Íran Erlent Skammt stórra högga á milli Veður Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent Fleiri fréttir Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm „Auðvitað mikið áfall“ Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Öllu flugi dagsins aflýst Öflug sprenging í Korngörðum og vonskuveður víða Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng Sjá meira