Stígamót ekki alls kostar ánægð með frumvarp um kynferðisbrot 15. febrúar 2006 08:00 Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir ýmislegt jákvætt, en annað neikvætt, við frumvarpið. MYND/Vísir
Talskona Stígamóta hefur ýmislegt að setja út á nýtt frumvarp dómsmálaráðherra um kynferðisbrot, þó ýmislegt jákvætt sé þar að finna að hennar mati. Afnám fyrningafrests vegna kynferðisbrota gegn börnum er meðal þess sem hún vildi sjá í frumvarpinu. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kynnti ríkisstjórninni drög að frumvarpi um endurskoðun laga um kynferðisbrot í gær. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir ýmislegt jákvætt, en annað neikvætt, við frumvarpið. Það að refsilöggjöfin sé hert sé vissulega af hinu góða. Þá segir hún einnig jákvætt að ætlunin sé að hækka refsirammann í kynferðisbrotum gegn börnum og lengja fyrningafrestinn, en hún kveðst vilja ganga lengra og afnema fyrningar í slíkum málum. Þá segist Guðrún fagna því að kastað hafi verið út þeim "smánarbletti á íslenskri löggjöf" að seljendur vændis séu álitnir sekir. Málið sé hins vegar skilið eftir í lausu lofti því það sé ekki gert refsivert að kaupa sér kynlífsþjónustu. Og Guðrún hefði viljað sjá þverfaglegri nálgun við vinnu þessa frumvarps, og fleiri, t.a.m. eldra frumvarps um heimilisofbeldi. Stígamót hafi til að mynda ekki fengið að koma að gerð þessara frumvarpa. Guðrún vill að margir aðilar með víðtæka þekkingu fái að koma að svona vinnu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Fleiri fréttir Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Sjá meira