Söknuður - 4 stjörnur Trausti Júlíusson skrifar 22. desember 2006 08:30 Söknuður - Jóhann Helgason
Söknuður hefur að geyma nýjar upptökur af sextán þekktum lögum eftir Jóhann Helgason. Jóhann á ógrynni laga sem hafa náð miklum vinsældum ýmist í flutningi hans sjálfs og þeirra hljómsveita sem hann hefur verið meðlimur í eða í flutningi annarra. Hér syngur Jóhann lögin öll sjálfur við undirleik Jóns Ólafssonar píanóleikara, Guðmundar Péturssonar gítarleikara, Friðriks Sturlusonar bassaleikara og Jóhanns Hjörleifssonar trommuleikara. Útsetningar eru eftir Jón Ólafsson. Það orkar oft tvímælis þegar tónlistarmenn gera heilar plötur með nýjum útgáfum af gömlum smellum. Oftar en ekki vantar neistann í nýju upptökurnar jafnvel þó að öll vinna í kringum þær sé til fyrirmyndar og maður skilur ekki af hverju gömlu sígildu upptökunum var ekki frekar bara safnað saman til útgáfu. Söknuður fellur ekki í þennan flokk „óþarfa“ endurvinnsluplatna bæði vegna þess að hér eru nýjar útsetningar á ferðinni og vegna þess að mörg þessara laga hafa ekki komið út með Jóhanni sjálfum áður. Jóhann Helgason er einn af okkar fremstu lagasmiðum eins og heyrist glöggt þegar hlustað er á þessa plötu. Hún er stútfull af flottum lagasmíðum. Á meðal laga eru Yaketty Yak Smacketty Smack, Poker, She’s Done It Again, Sail on, Ástin og lífið, Í Reykjavíkurborg, Ástin mín ein, Karen Karen og titillagið Söknuður. Allt frábær lög sem við þekkjum í flutningi jafn ólíkra flytjenda og Þú og ég, Vilhjálms Vilhjálmssonar, Björgvins Halldórssonar og Magnúsar og Jóhanns. Útsetningar Jóns Ólafssonar eru hættulega nálægt því að vera karakterlaust „easy-listening“ miðjumoð, en söngur Jóhanns lyftir þeim á hærra plan. Það er hrein unun að hlusta á þessa mjúku og viðkvæmnislegu en á sama tíma töffaralegu söngrödd og það verður að segjast Jóni til hróss að söngurinn nýtur sín til fulls í þessum útsetningum.
Menning Tónlist Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Lífið Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Lífið „Maður á ekki að vera feiminn við að vera fínn“ Tíska og hönnun Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Fleiri fréttir Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira