Tveir skipverjar fórust í sjóslysi 3. nóvember 2006 01:30 Skip sekkur Finnbirch sökk í Eystrasalti á miðvikudag. MYND/nordicphotos/afp
Tveir fórust þegar sænskt fraktskip sökk í aftakaveðri á Eystrasalti seint á miðvikudagskvöldið. Björgunarmönnum tókst að bjarga þrettán manns um borð í þyrlu, en leit að fjórtánda áhafnarmeðlimnum bar ekki árangur og er hann talinn látinn. Þyrlan flutti alla þá sem bjargað hafði verið á sjúkrahús í Kalmar í Svíþjóð, og lést einn þeirra þar. Áhöfnin, sem í voru fjórir Svíar og tíu Filippseyingar, stökk í sjóinn þegar skipið, Finnbirch, sökk milli Gautlands og Svíþjóðar. Aftakaveður var á svæðinu og náðu öldurnar fimm metra hæð, og gerði ölduhæðin björgunarmönnum mjög erfitt fyrir. Um 260 tonn af olíu eru um borð og óttast sænska landhelgisgæslan að olían leki úr skipinu, segir á fréttavef danska blaðsins Politiken. Ekki er ljóst hvað olli því að skipið sökk, en það liggur nú á 70 metra dýpi. "Við getum bara giskað á orsökina, við höfum ekki nægar upplýsingar," sagði Jan Larsen, forstjóri Lindholm Shipping, eiganda Finnbarch. Skipið var á leið frá Helsinki í Finnlandi til Árósa í Danmörku þegar slysið varð.
Erlent Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Sjá meira