Vændishúsum lokað í Osló 1. nóvember 2006 07:00 Húsleit gerð Norska lögreglan gerði húsleit í fjölmörgum húsum í Osló í gær og lokaði minnst tveimur vændishúsum. Myndin tengist fréttinni ekki.
Noregur Norska lögreglan lokaði í gær vændishúsum og gerði húsleit í fjölmörgum eignum 51 árs gamals Norðmanns, sem allar eru í Osló. Að sögn lögreglu voru vændishús rekin í að minnsta kosti tveimur þeirra, kemur fram í frétt Aftenposten af málinu. Eigandinn, Leif Hesle, var handtekinn og færður til yfirheyrslu, en hann er grunaður um aðild að vændisrekstrinum, sem og stórfelld skattsvik. Alls var húsleit gerð í tíu til tólf eignum, en Hesle hefur á fáeinum árum orðið einn umfangsmesti fasteignafjárfestir Noregs. Sjálfur hefur hann sagst eiga allt að 300 eignir í útleigu. Auk Hesle voru þrír aðrir karlmenn og ein kona handtekin og færð til yfirheyrslu í tengslum við málið. Alls tóku yfir 100 lögreglumenn þátt í húsleitunum og voru sumir þeirra sendir frá Danmörku, því talið er að vændiskonurnar hafi komið til Noregs í gegnum Danmörku, að sögn Iver Stensrud hjá Oslóarlögreglunni. Jafnframt voru starfsmenn skattstjóra Noregs með í för. Lögregla telur að minnst 20 konur hafi starfað við vændi í húsunum. Flestar eru þær frá Nígeríu og eru löglega í landinu með þriggja mánaða ferðamannaáritun. Þær gætu verið fórnarlömb mansals, kom fram í máli Stensruds, sem sagði jafnframt að forsvarsmenn vændishúsanna auglýstu reglulega á internetinu.
Erlent Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira