Arsenal á sigurbraut 23. október 2006 10:30 hetjan Jussi Jaaskelainen varði tvö víti á þriggja mínútna kafla og kom í veg fyrir að Blackburn fengi eitthvað út úr leiknum gegn Bolton. MYND/nordicphotos/getty images
Arsenal heldur áfram að elta efstu lið deildarinnar en í gær vannst fyrirhafnarlítill sigur á nýliðum Reading 4-0 á útivelli. „Við byrjuðum vel, spiluðum vel og tækni okkar gerði gæfumuninn. Við stjórnuðum þessum leik algjörlega. Einbeitingin hvarf síðustu tuttugu mínúturnar en á heildina litið er ég ánægður. Liðið verður betra og betra með hverjum leiknum og við getum bætt okkur enn frekar,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, en liðið hefur nú unnið fimm deildarleiki í röð. Eftir 58 sekúndna leik í gær tók Arsenal forystuna með marki frá Thierry Henry en hann átti eftir að bæta öðru við áður en flautað var til leiksloka. Erkifjendur Arsenal gátu einnig fagnað í gær því Tottenham vann West Ham 1-0 með stórglæsilegu marki frá Mido. Vandræði West Ham halda áfram en liðið er í næstneðsta sæti deildarinnar. Finnski markvörðurinn Jussi Jaaskelainen var hetja Bolton en hann varði tvær vítaspyrnur í sigri liðsins á Blackburn á útivelli. Eina mark leiksins skoraði reynsluboltinn Ivan Campo sem leikið hefur nær óaðfinnanlega á tímabilinu. Bolton er óvænt í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Manchester United og Chelsea. Þá eykst pressan á Glenn Roeder, stjóra Newcastle, en liðið tapaði fyrir Middlesbrough í gær þar sem Yakubu skoraði sigurmarkið undir lokin.
Íþróttir Mest lesið Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enski boltinn Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Arnar með met í 100 km: „Sýnist þetta vera níundi hraðasti tíminn í heiminum“ Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Uppgjör: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Íslenski boltinn Tveir látnir eftir sama hnefaleikakvöld í Tókýó Sport Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Fótbolti Fleiri fréttir Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Sjá meira