Birta mynd af „njósnara“ Southampton Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. maí 2026 17:40 Maðurinn hefur verið nafngreindur William Salt og er sagður hluti af þjálfarateymi Southampton. daily mail Mynd hefur verið birt af meintum njósnara Southampton, manninum sem á að hafa veitt æfingu Middlesbrough eftirtekt fyrir umspilsleik liðanna í ensku Championship deildinni.
Daily Mail birti myndina af manninum sem er sagður hafa njósnað ólöglega æfingu Middlesbrough fyrir hönd þjálfarateymis Southampton. Hann hefur verið nafngreindur William Salt og er sagður hluti af þjálfarateymi Tonda Eckert. Eftir markalaust jafntefli í fyrri leiknum gegn Middlesbrough vann Southampton 2-1 sigur í gær og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum gegn Hull á Wembley þann 23.maí næstkomandi. Njósnirnar hafa því skilað sér ef sannar reynast. Eckert sagði hins vegar ekkert til í ásökununum þegar hann svaraði fyrir sig á blaðamannafundi Southampton fyrr í dag. Middlesbrough er sagt ætla að nota myndina í kærumáli sínu til ensku deildasamtakanna. Þar verður farið fram á að Southampton verði dæmt úr leik í umspilinu. Middlesbrough er einnig sagt vera með kvittun frá kreditkorti njósnarans, William Salt, frá golfklúbbi við hliðina á æfingasvæðinu á þeim tíma sem æfingin fór fram. Félagið er sagt í leit að fleiri sönnunargögnum og hefur fengið til starfa íþróttalögfræðinginn Nick De Marco. Hans fyrsta verk var að fara fram á að skýrslutaka myndi fara fram fyrir helgi. Vanalega hafa félög tvær vikur til að svara kærum en úrslitaleikur umspilsins á að fara fram föstudaginn 22. maí og þess vegna hefur Middlesbrough óskað eftir flýtimeðferð. Framkvæmdastjóri Southampton, Phil Parsons, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir að félagið muni verða samvinnufúst í rannsókn málsins.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjá meira