Haukar réðu ekki við Thomas 23. október 2006 12:00 adam darboe Átti góðan leik fyrir Grindavík í gær. MYND/víkurfréttir /Þorsteinn
Grindavík hélt áfram sigurgöngu sinni í Iceland Express deild karla í gær og nú báru þeir sigurorð á Haukum, 95-85. Heimamenn gerðu út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks og breyttu átta stiga forskoti í 24 stiga forskot á sex mínútna kafla. Páll Axel Vilbergsson hafði hægt um sig í fyrri hálfleik en skoraði tíu stig á þessum leikkafla. Segja má að Grindvíkingar hafi keyrt yfir andstæðinga sína því tólf af stigunum 20 komu úr hraðaupphlaupssóknum. Haukar náðu að vísu að minnka muninn í átta stig á nýjan leik en náðu aldrei að ógna Grindvíkingum að einhverju ráði. Heimamenn voru með ágætis tök á leiknum og réðu ekkert við Steven Thomas sem skoraði 24 stig í leiknum, tók 23 fráköst og fiskaði ellefu villur. Adam Darboe átti einnig ágætan leik og Páll Axel kom sterkur inn í seinni hálfleik sem fyrr segir en nítján af 23 stigum hans komu þá. Í liði Hauka var Roni Leimu yfirburðamaður en gaman var að sjá Kristinn Jónasson sem kom ferskur inn í Haukaliðið eftir að hafa meiðst á undirbúningstímabilinu. Hann skoraði 15 stig á 20 mínútum. Það er annars áhyggjuefni fyrir Friðrik Ragnarsson, þjálfara Grindavíkur, að öll stig liðsins komu frá byrjunarliðsmönnunum. Liðið virðist hafa litla breidd sem gæti reynst erfitt þegar fram í sækir. Tveir sigrar eru þó komnir í hús af tveimur mögulegum en gegn liðum sem var ekki spáð í toppbaráttu deilarinnar.
Íþróttir Mest lesið Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Fótbolti Glasner: Myndi ekki skipta á skildinum fyrir sæti í Evrópukeppni félagsliða Fótbolti Uppgjör: Valur - Breiðablik 2-1 | Dramatískt sigurmark Vals í uppbótartíma Íslenski boltinn Slot: Sá sem truflaði hafði örugglega ekkert illt í hyggju Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Íslenski boltinn „Rýr stigasöfnun í deildinni vissulega áhyggjuefni“ Fótbolti Barcelona rúllaði yfir Como Fótbolti Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Körfubolti Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enski boltinn „Brugðumst vel við þeim aðstæðum sem leikurinn henti í okkur“ Fótbolti Fleiri fréttir Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Íslenski boltinn