Al Gore flytur erindi á Íslandi 23. september 2006 02:00 handtak Al Gore og Ólafur Ragnar Grímsson takast í hendur í New York.
Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hefur þegið boð Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að heimsækja Ísland. Mun Gore kynna sér árangur Íslendinga á sviði endurnýjanlegrar orku og tilraunaverkefni um eyðingu koltvísýrings úr andrúmsloftinu, auk þess sem hann mun ræða breytingar í hafinu umhverfis Ísland. Þá mun hann halda hér opinberan fyrirlestur. Al Gore er áhrifamikill talsmaður um brýna nauðsyn þess að bregðast við hættunni af loftslagsbreytingum. Nýleg kvikmynd hans hefur vakið athygli og var sýnd á nýliðinni kvikmyndahátíð á Íslandi. Ólafur Ragnar og Al Gore ræddust við í New York á fimmtudag um fjölmörg verkefni á sviði orkunýtingar og vísindarannsókna. Ólafur Ragnar fjallaði um samvinnuverkefni Íslendinga og annarra þjóða um nýtingu jarðhita og Gore lýsti áhyggjum sínum af breytingum sem kunna að vera að gerast í heimshöfunum, einkum á norðlægum hafsvæðum. Ekki er frágengið hvenær Al Gore kemur til Íslands en í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að heimsóknin verði bráðlega.
Innlent Mest lesið Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka Innlent Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Innlent „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Innlent Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Erlent „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Innlent Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Innlent Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Erlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Fleiri fréttir Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Snjóflóðahætta og öfgakarlmennska áhrifavalda Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Milljarður í holufyllingar og Einar minnti á heilahristing Patta Lagt til að bílastæðum fjölgi við nýbyggingar Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Grunsamlegir póstar í umferð: „Tafarlaus aðgerð nauðsynleg“ Dælan anni ekki vatnsmagni Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Lögreglustöðinni verði lokað verði húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Sjá meira