Lýsa furðu á takmörkunum 22. september 2006 02:00 Þjóðskjalasafn Íslands Sagnfræðingafélag Íslands telur óeðlilegt að hömlur séu á aðgangi að gögnum um símhleranir. MYN D/GVA
Símhleranir Stjórn Sagnfræðingafélags Íslands sendi frá sér ályktun í gær þar sem félagið lýsir furðu sinni á takmörkunum á aðgangi að gögnum um símahleranir í vörslu Þjóðskjalasafnsins. Í ályktuninni segir að sjálfsagt sé að ákveðnar reglur gildi um aðgang að skjölum af þessu tagi en afar varhugavert að þær hömlur vegi þyngra en réttur til rannsókna á liðinni tíð, að teknu tilliti til sjálfsagðra ákvæða um persónuvernd. Einnig eiga einstaklingar, sem hafa rökstuddan grun um að um þá sé fjallað í þeim gögnum sem um ræðir, rétt á því að kanna þau með sömu skilyrðum og aðrir hafa notið. Allir eiga að vera jafnir fyrir lögum og reglum um aðgang að opinberum gögnum. Guðni Th. Jóhannesson, formaður félagsins, vék af fundi þegar ályktað var um málið þar sem hann tengist málinu, bæði með því að hafa verið veittur aðgangur að sumum gögnum en synjað um aðgang að öðrum. Mikil umræða hefur verið á meðal sagnfræðinga undanfarna daga um málið og ekki síst á póstlistanum Gammabrekku. Þar hefur stjórn Sagnfræðingafélagsins verið hvött til að álykta um málið. Sérstaklega eru sagnfræðingar ósáttir við framgöngu Ólafs Ásgeirssonar, þjóðskjalavarðar, og fullyrða að hann hafi brotið siðareglur Sagnfræðingafélagsins með því að neita fjölmörgum einstaklingum um aðgang að gögnunum, með þeim rökum að eðlilegt sé að nefnd um upplýsingamál fjalli um kærumál sem tengjast málinu áður en frekari aðgangur er veittur.
Innlent Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira