Gaza-svæðið minnir helst á fangelsi 9. september 2006 05:15 Ráðist á þinghúsið. Víðtæk verkföll hafa staðið yfir á Gaza-svæðinu vegna þess að 165 þúsund opinberir starfsmenn hafa ekki fengið launin sín greidd.
Hernaðaraðgerðir Ísraelsmanna á Gaza-svæðinu valda þjáningu og angist íbúa þar, fremur en að skapa vilja til sátta og samninga. Alþjóðlegar refsiaðgerðir einangra Palestínumenn og eru að ganga af efnahag svæðisins dauðum, að mati Karen Abuzayd, eins yfirmanna neyðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna. Abuzayd óttast einnig að flestar stoðir samfélagsins séu við það að bresta og segir brýna þörf fyrir alþjóðlegt gæslulið til verndar Palestínumönnum. Í viðtali við BBC-fréttastofuna reifar Abuzayd ástand mála í Palestínu og minnist á innilokunarkennd fólks sem hefur búið við hernám í 37 ár. Í grein breska blaðsins Independent, sem birtist í vikunni, er Gaza-svæðinu líkt við fangelsi. Fréttaritari blaðsins segir íbúana við hungurmörk og að verið sé að eyðileggja gjörvallt samfélagið með árásum Ísraelsmanna. Síðan árásirnar hófust seint í júnímánuði, hafa 262 látið lífið, þar af 64 börn og 26 konur. 1.200 hafa særst og um sextíu misst útlimi. Lyf á sjúkrahúsinu eru af skornum skammti, en þriðjungur sjúklinga er á barnsaldri. Síðustu 74 daga hafa verið gerðar 250 loftárásir á svæðinu. Í vikunni hafa staðið yfir víðtæk verkföll á Gaza-svæðinu vegna þess að 165 þúsund opinberir starfsmenn hafa ekki fengið laun greidd í hálft ár. Forsætisráðherra heimastjórnarinnar lýsti því yfir í gær að ekki stæði til að Hamas-samtökin létu völdin af hendi.
Erlent Mest lesið Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Innlent Engin ástæða til að breyta neinu Innlent Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Innlent Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Innlent „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Innlent Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Erlent Nauðguninni flett upp í LÖKE hjá þremur embættum Innlent Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Erlent Fær ekkert greitt því að hann er Íslendingur Innlent Fleiri fréttir Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre „Samlokumaðurinn“ sýknaður Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Rannsaka hakakrossa sem voru málaðir með blóði úr manni Pútín sagður beina kúgunartækjum sínum að eigin stuðningsmönnum Flugumferðarstjórar að bugast og dregið úr ferðum innanlands Belgar kalla saman þjóðaröryggisráð vegna drónaflugs við flugvelli Tala látinna hækkar á Filippseyjum Óttast að María sé að stela athyglinni frá Jesú á samfélagsmiðlum Tortryggnir í garð tolla Trumps Plata hermenn í hjónaband og hirða svo bæturnar Hver er Zohran Mamdani og hvað vill hann? Banna samtök íslamista og gerðu húsleit hjá fleiri Evrópuríki ná saman um verulega útþynnt loftslagsmarkmið Stofnar Facebook hóp fyrir hatur gegn sjálfum sér Sjá meira