Létu vísa tveimur frá borði 22. ágúst 2006 05:45 í flugvél Rannsókn leiddi í ljós að mennirnir tveir voru alsaklausir ferðalangar. Þeir tóku næstu vél til Manchester daginn eftir.
Breskir flugfarþegar neituðu að hleypa flugvél á loft fyrr en tveir karlmenn af asískum uppruna, sem þeir grunuðu um að vera hryðjuverkamenn, yrðu færðir frá borði. Þetta kemur fram á fréttavef breska dagblaðsins Daily Mail. Mennirnir, sem voru ásamt 150 farþegum á leið til Manchester frá Malaga á Spáni, vöktu grunsemdir farþega með því að klæðast leðurjökkum í heitu veðri og tala saman á tungumáli sem líktist arabísku. Nokkrir farþegar stóðu upp og fóru frá borði og aðrir neituðu að fara um borð fyrr en mennirnir væru fjarlægðir úr vélinni. "Það voru allir sammála um að þessir menn litu grunsamlega út," sagði einn farþeganna. "Sumir farþegarnir voru mjög óttaslegnir, grétu jafnvel." Mönnunum var að lokum vísað frá borði af lögreglumönnum. Leitað var að sprengiefni í vélinni en ekkert fannst. Stuttu seinna fór vélin á loft með tveimur færri farþegum. Rannsókn leiddi í ljós að mennirnir tengdust hryðjuverkasamtökum ekki á nokkurn hátt og var þeim sleppt. Þeir tóku næstu vél til Manchester daginn eftir.
Erlent Mest lesið Sótti konuna á lögreglustöðina áður en hann réðst á hana Innlent Nauðguninni flett upp í LÖKE hjá þremur embættum Innlent Hrekur Walt-Disney líkingar þingmanns Innlent Fær ekkert greitt því að hann er Íslendingur Innlent Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Erlent Fjöldi gesta á vellinum myndi takmarkast við 5000 Innlent Mikil hætta skapist sé ekið á nýsteypta brúna Innlent Trump veitir Ungverjum undanþágu Erlent Grunaður um að aka undir áhrifum með börnin aftur í Innlent Bjargey meðferðarheimili: „Þetta var eins og lúxusneyslurými“ Innlent Fleiri fréttir Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre „Samlokumaðurinn“ sýknaður Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Rannsaka hakakrossa sem voru málaðir með blóði úr manni Pútín sagður beina kúgunartækjum sínum að eigin stuðningsmönnum Flugumferðarstjórar að bugast og dregið úr ferðum innanlands Belgar kalla saman þjóðaröryggisráð vegna drónaflugs við flugvelli Tala látinna hækkar á Filippseyjum Óttast að María sé að stela athyglinni frá Jesú á samfélagsmiðlum Tortryggnir í garð tolla Trumps Plata hermenn í hjónaband og hirða svo bæturnar Hver er Zohran Mamdani og hvað vill hann? Banna samtök íslamista og gerðu húsleit hjá fleiri Evrópuríki ná saman um verulega útþynnt loftslagsmarkmið Stofnar Facebook hóp fyrir hatur gegn sjálfum sér Sjö látnir eftir flugslysið í Kentucky Tugir látnir eftir fellibyl á Filippseyjum „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Féll til jarðar rétt eftir flugtak Fundu 1,7 tonn af kókaíni í kafbát á miðju Atlantshafi Sjá meira