Enginn pantaði risaþotu á árinu 11. júlí 2006 13:56 Engin flugfélög hafa lagt inn pöntun fyrir A380 risaþotu frá Airbus það sem af er árs.
Pantanir á flugvélum hjá evrópsku flugvélasmiðjunum Airbus hafa dregist mikið saman á milli ára. Á fyrstu sex mánuðum ársins voru pantaðar 117 nýjar flugvélar sem er 159 flugvélum færra en á sama tíma í fyrra. Þessu er öfugt farið hjá Boeing, helsta keppinauti Airbus. Flugfélög víða um heim hafa á fyrstu sex mánuðum ársins tryggt sér 487 Boeing-vélar, sem er 48 vélum fleiri en á sama tíma fyrir ári. Fjármálasérfræðingar segja ljóst að neikvæð umræða um fyrirtækið í kjölfar tafa á framleiðslu A380 risaþotum félagsins hafi skaðað Airbus. érfræðingarnir búast hins vegar við að hagur fyrirtækisins batni á árinu en líkur eru sagðar á að fyrirtækið nái góðum samningum á Farnborough flugvélasýningunni í Bretlandi síðar í þessum mánuði. Að sögn breska ríkisútvarpsins hafa engar pantanir borist í A380 risaþotur frá Airbus á þessu ári. Þrátt fyrir hremmingar vegna framleiðslu á A380 risaþotunum, sem verða þær stærstu í heimi, hefur Airbus aldrei selt fleiri flugvélar en á þessu ári. Fyrirtækið hefur það sem af er árs selt 219 vélar og er það 30 vélum meira en á sama tíma í fyrra.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf Gengi Alvotech tekur kipp Viðskipti innlent Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Viðskipti innlent „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Viðskipti innlent Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira