Styttist í tónlistarverðlaunin 21. janúar 2005 00:01
Undirbúningur fyrir afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2004 hefur staðið yfir frá því í haust. Verðlaunin verð afhent miðvikudaginn 2. febrúar í Þjóðleikhúsinu. Þetta verður í 11. skipti sem verðlaunin verða afhent og verður hátíðin sýnd í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Íslensku tónlistarverðlaunin eru hugsuð sem vegsauki fyrir íslenska tónlist; flytjendum, höfundum og útgefendum til hvatningar. Hátíðin verður að vanda þéttsetin íslenskum stórstjörnum. og munu meðal annars koma fram: MEZZOFORTE HJÁLMAR RAGNHEIÐUR GRÖNDAL BRAIN POLICE JAGÚAR OG FLEIRI Einnig koma fram Lúðrasveit Reykjavíkur, Bubbi Morthens, Camilla Söderberg, Jón Jósep Snæbjörnsson, Sigmundur Ernir Rúnarson, Þorgeir Ástvaldsson, Edda Andrésdóttir, Egill Ólafsson, Selma Björnsdóttir, Ragnhildur Gísladóttir, Logi Bergman Eiðsson, Steinar Berg Ísleifsson, Stefán Hjörleifsson, Bjarni Guðmundsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Tryggvi Baldvinsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Nylon.Viðhafnargestir og glæsileg aukaverðlaun Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson mun að vanda afhenda heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunna. Menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mun flytja ávarp og Iðnaðarráðherra Valgerður Sverrisdóttir afhendir ein af aðalverðlaunum kvöldsins. Borgarstjórinn í Reykjavík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir afhendir sérstök útflutningsverðlaun "Loftbrúar Reykjavíkur" en í fyrra voru þau afhent í fyrsta skitpti. Það var hljómsveitin Mínus sem hreppti þessi eftirsóttu verðlaun í fyrra en þau eru veitt fyrir góðan árangur í útflutningi á íslenskri tónlist. Verðlaunin eru ekki af verri endanum því þau tryggja verðlaunahafa flug og flutningsfríðindi á erlendri grundu í heilt ár. Kjartan Ólafsson formaður Samtóns afhendir svo Hvatningarverðlaun Samtóns en þau eru veitt þeim sem hafa unnið með einum eða öðrum hætti að auknu brautargengi fyrir íslenskt tónlistarlíf.Framkvæmdastjórn og undirbúningur Einar Bárðarson hefur stjórnað framkvæmdum á undirbúningi verðlaunanna fyrir SAMTÓN ásamt stjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna síðustu fjögur ár. Á þeim árum hefur umfang verðlaunanna aukist mjög mikið og eru þau nú glæsileg uppskeruhátíð alls tónlistarfólks í landinu. Áhorf á útsendingu Sjónvarpsins frá síðustu verðlaunahátíð var mælt og var samanlagt áhorf á útsendinguna 51 prósent. Það er staðfesting á því að verðlaunin hljóta verskuldaða athygli hjá landsmönnum.Saga Íslensku tónlistarverðlaunanna Verðlaunin voru fyrst afhent fyrir starfsárið 1993. Það var stjórn Rokkdeildar Félags íslenskra hljómlistarmanna sem stóð fyrir afhendingunni og fór hún fram í apríl árið 1994. Í dag eru það Samtónn, samtök flytjenda, tónhöfunda og útgefenda sem bera veg og vanda af Íslensku tónlistarverðlaununum. Bakhjarlar Íslensku tónlistarverðlaunanna eru Landsbankinn, Icelandair og Vísir.
Íslensku tónlistarverðlaunin Mest lesið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira