Miðja vegu milli kanínu og lambs 12. ágúst 2005 00:01
Jóhanna B. Þorvaldsdóttir, hjúkrunarfræðingur og bóndi, tekur þátt í tilraunaverkefni með vinnslu á afurðum úr sauða- og geitamjólk. Geitaostur sem er sambærilegur hinum gríska fetaosti var unninn í Mjólkursamlaginu í Búðardal úr geitunum hennar og verður í kynningarsölu á meðan birgðir endast. „Ég er sú eina sem hefur verið að mjólka geiturnar mínar hérlendis, en ég er með 34 geitur og fæ þannig um 30 lítra á dag,“ segir Jóhanna. Hún segir geitamjólkina auðmeltari en kúamjólkina, hún henti sérstaklega vel fólki og börnum með óþol og sé góð við sýkingum. „Miklar rannsóknir hafa verið unnar í Noregi og víðar á geitamjólkinni sem heilsufæði og nú hefur verið sett af stað rannsóknarverkefni sem miðar að því að kortleggja prótein í íslenskri geitamjólk,“ segir Jóhanna, sem hefur mikla trú á geitamjólkinni og metur næringareiginleika hennar mikils. „Sjálf bý ég til jógúrt úr mjólkinni og barnabarnið mitt lifir alfarið á geitamjólkinni,“ segir Jóhanna. Í geitamjólkinni eru smærri prótein, sem fara betur í meltingarveg barna, sérstaklega þeirra sem þola ekki kúamjólk og jafnvel ekki sojamjólk heldur. „Kiðlingakjötið nota ég einnig mjög mikið en það er mjög gott. Það er alveg fitulaust og er miðja vegu milli kanínu og lambs, en kjötið er mun ljósara en á lambi,„ segir Jóhanna. Hún segist vera mjög spennt að taka þátt í verkefninu, enda hafi hún lagt hjarta sitt og sál í vinnuna með geitunum. „Það er virkilega gaman að sjá árangur af vinnu sinni. Draumurinn er svo náttúrlega að búa sjálf til ostinn á búinu og selja hann ásamt mjólkinni beint þaðan,“ segir Jóhanna og bætir því við að íslenska geitamjólkin sé sætari og mildari en kúamjólkin og köld og ný sé hún ekki ósvipuð léttmjólk. „Mér finnst vanta að brúni geitaosturinn sé búinn til hérna, hann er svo góður. Geitaostarnir verða til sölu í Mjólkurbúðinni í Búðardal, Ostabúðinni á Bitruhálsi, Ostabúðinni á Skólavörðustíg og Ostahúsinu í Hafnarfirði.
Matur Mest lesið Betra að vera blankur nemi í New York Lífið „Get ekki hætt að hugsa um bragðarefinn sem hann pantaði“ Lífið Gisti hálft ár á sófum hjá bekkjarfélögum Lífið Troðningur á yfirfullri opnun: „Þetta var svolítið kreisí“ Lífið Pétur Kr. og Ingibjörg selja 270 fermetra eign við Ægisíðu Lífið Dannaðar dömur mættu með dramað Tíska og hönnun Upplifði stöðugan ótta við helvíti í samfélagi múslima í Svíþjóð Lífið Stjörnulífið: „Dagur sem mun aldrei gleymast“ Lífið Fékk lífið til baka á korteri eftir tólf ár af sársauka Lífið Langþráður draumur verður að veruleika Lífið Fleiri fréttir Smjörsteikt bleikja, smjörkennt hvítvín og „alkahólíseraður Texasbúi“ „Táknmynd ítalskrar matargerðar“ Silkimjúk espresso-kaka fyrir helgina „Forréttur sem ég býð öllum upp á“ Próteinríkt avókadó-salat að hætti Önnu Eiríks Sjá meira