Ætlar að ná tveggja stafa tölu 6. júlí 2005 00:01 "
Ég byrjaði í heilsuátaki fyrir um það bil þremur mánuðum. Ég tek þetta rólega enda vil ég ekki grennast of mikið á skömmum tíma. Þá bæti ég öllum kílóunum bara strax aftur á mig og meiru til. Ég reyni að fara tvisvar á dag en hef ekki komist mikið vegna plötunnar sem ég var að gefa út," segir Davíð Smári. "Ég hjóla mikið í ræktinni. Síðan á frændi minn Fitness Sport-verslanirnar þannig að ég hitti hann mjög mikið í ræktinni og við lyftum saman. Ég er að reyna að styrkja mig, byggja mig upp og tálga af mér í leiðinni. Ég er búinn að missa sextán til sautján kíló og það er vissulega þægilegra. En ég ætla að missa tuttugu í viðbót og ná mér niður í sama form og pabbi gamli var í -- niður í tveggja stafa tölu," segir Davíð Smári en hann hlýtur að þurfa að endurnýja fataskápinn í hverjum mánuði. "Já, það liggur við því en ég ræð við það." Davíð Smári spáir ekki of mikið í mataræðið en hefur samt tekið sig talsvert á í því. Áður en ég fer í ræktina á morgnana þá borða ég ekkert. Þegar ég er búinn fæ ég mér skyr og síðan kjúkling í hádeginu. Ég drekk líka ógrynni af Kristal plús. Ég borða mig aldrei saddan og borða rosalega mikið af kjúklingi, fiski og skyri. Síðan stelst ég endrum og eins í lifrarpylsu en það er það besta sem ég fæ," segir Davíð Smári og hlær og þarf að kveðja blaðamann þar sem hann er á leiðinni á hestbak. "Pabbi og mamma eiga hesta og ég reyni að fara á hestbak þegar ég kemst."
Heilsa Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Lífið Superstore-leikari látinn Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira