Vill snarpa og málefnalega baráttu 3. apríl 2005 00:01 "
Ég vil hefja stutta baráttu, snarpa, málefnalega og drengilega," sagði Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, í gær þegar kosningaskrifstofa hans, sem hann kýs að kalla starfsstöð, var opnuð að Ármúla 40. Formannsslagur Samfylkingar stendur á milli þeirra Össurar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur en hún opnaði kosningaskrifstofu sína 9. mars. Össur segist ætla að sannfæra kjósendur sína með því að leggja fram störf sín og stefnu auk þeirra breytinga sem hann vilji gera á innra starfi flokksins. "Ég vil halda áfram að efla beint lýðræði innan flokksins eins og er gert með þessari beinu formannskosningu og var gert með Evrópukosningunni." Þá segist Össur vilja láta kjósa framkvæmdastjóra beint á landsfundi. Össur segist bjartsýnn þrátt fyrir að hann hefji kosningabaráttu sína seint, þó að segja megi að tíminn sé svipaður og allt pólitíska sviðið í Bretlandi og Danmörku noti í kosningabaráttu. Landsfundur Samfylkingarinnar hefst 20. maí og verða úrslit formannskosninganna tilkynnt daginn eftir.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Erlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Björg býður ungliðum til fundar Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Innlent Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Innlent Fleiri fréttir Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Takmarka fjölda nemenda utan EES Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Mikill meirihluti ánægður með að Ísland taki ekki þátt Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Pollróleg þó starfsáætlun þingsins hafi verið felld úr gildi Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Ragnhildur nýr framkvæmdastjóri Píeta samtakanna Norðurþing og Heidelberg undirrita viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á Bakka Skoða málsókn vegna látinna sona og hagstæðustu jólainnkaupin Vestmannaeyjastrengir 4 og 5 teknir í rekstur Grunaður um manndráp á Kársnesi Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Stofnunum fækkar um tuttugu Ísland tekur höndum saman með Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Óska eftir myndefni frá Kársnesi vegna mannslátsins „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni „Grafalvarlegt“ að Ísland fari gegn vísindalegri ráðgjöf Laxar struku úr landeldi í Eyjum Sjá meira