Hinn vælandi Alexander Egill Helgason skrifar 26. janúar 2005 00:01
Háskólabíó: Alexander mikli Oliver Stone býður upp á hinn vælandi Alexander. Samt finnst manni að Stone hafi haldið að hann væri að gera listaverk - honum er svo mikið í mun að sýna hvað er að brjótast um í huga Alexanders að herkonungurinn mikli er háfkjökrandi allan tímann. Flatneskjulegt málæðið í myndinni er yfirgengilegt. Hvernig maður af þessu tagi náði að draga her með sér út á heimsendi er ráðgáta sem fyrr - maður er nákvæmlega engu nær eftir að hafa horft á myndina. Fremur mætti mæla með bókinni - á íslenskri tungu eigum við til dæmis Alexanders sögu Brands ábóta frá þrettándu öld. Það kemur svosem ekki á óvart að Stone hafi valið sér þetta efni; í honum hefur alltaf bærst nietzscheísk stórmennisdýrkun, hrifning á mönnum sem brjóta reglur. Flottasta persóna í mynd eftir hann er og verður verðbréfaþrjóturinn Gordon Gekko í Wall Street. Vandinn er bara sá að í þetta sinn misheppnast þetta alveg hjá honum. Colin Farrell er hræðilegur í hlutverki Alexanders - með írskan hreim og strípur í hári. Maður efast um að ferill hans nái sér eftir þetta. Angelina Jolie, sem leikur móður hans, talar með rússneskum hreim en leikur alveg jafn illa. Undirliggjandi er svo ástarsaga milli Alexanders og félaga hans af karlkyni. Þar örlar ekki á neinum tilfinningum eða ástríðuhita, enda er ástin ekki sýnd með öðru en löngum og meiningarfullum augnagotum. Þarna hefur Stone tekist að ganga of langt fyrir landa sína sem vilja ekki sjá hommaskap í kvikmyndum, en ekki nógu langt til að verði eitthvað vit í þessu. Þetta verður bara teprulegt og langdregið. Maður gæti afsakað þetta ef það væri minisería á Hallmark, en sem stórmynd frá frægum leikstjóra - nei.
Brotasilfur Menning Silfur Egils Mest lesið Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni Lífið Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Lífið Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Lífið Illuminati varð táknmynd ótta við ósýnileg öfl Lífið „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Lífið Sumarið er komið á Boozt Lífið samstarf Ástfangnar í fjörutíu ár Lífið Veittu verðlaun fyrir dónalegasta orðið á Íslandsmeistaramóti í skrafli Lífið Þórhildur og Hjalti eiga von á barni Lífið Jiggly Caliente dragdrottning látin Lífið Fleiri fréttir Bryan Adams breytti Eldborg í grátkór íslenskra karla Þetta er ástæðan fyrir því að þú átt aldrei að bjóða óperusöngvara í matarboð Spegill, spegill, herm þú mér, hve léleg endurgerðin er Rislítil ástarsaga Eldborg breyttist í vélrænt helvíti Kaldrifjað morð, ungar karlrembur og kæfandi andrúmsloft Strípibúlluást sem hleypir öllu í háaloft Stormur fellur á prófinu Víkingur Heiðar á fjölbreyttri afmælisveislu með ljóslifandi hápunktum Leiksigur Ladda Elísabet fær uppreist æru Sjá meira