Inflúensan komin á kreik 4. janúar 2005 00:01
Inflúensan er komin hingað til lands og tilfellunum fjölgar jafnt og þétt að sögn Haraldar Briem sóttvarnarlæknis. "Það er svona stígandi í þessu. Yfirleitt tekur 6 til 8 vikur fyrir svona inflúensufaraldur að ganga yfir þannig að reikna má með því að það verði talsvert mikið um lasleika nú í janúar. Þó fer engum sögum af því að menn séu fárveikir en auðvitað er inflúensa aldrei skemmtileg." Haraldur segir inflúensu bæði af A og B stofni hafa greinst og spurður um mismun á þeim svarar hann. "Það er inflúensa A sem er alltaf mest að angra okkur, það er hún sem fer um heiminn og er síbreytileg þannig að okkar gömlu mótefni virka ekki nógu vel en alltaf er reynt að hafa bóluefnið sem líkast þeirri veiru sem er í gangi. B veiran er stöðugri og smitast ekki eins hratt. Hún er svona til hliðar við hina."
Heilsa Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Lífið Superstore-leikari látinn Lífið Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira