Eldri hjón létust í árekstri 3. nóvember 2004 00:01
Niðurstaða dánardómstjóra í Stafford-héraði í Bretlandi er sú að lát eldri hjóna sem lentu í árekstri við Guðjón Þórðarson knattspyrnuþjálfara 10. apríl hafi verið af slysförum. Guðjón var ekki á nokkurn hátt sagður valdur að slysinu í úrskurðinum sem kom nú í byrjun mánaðarins. Hjónin sem létust hétu Ronald og Muriel Bell, frá Natwich í Englandi, hann 73 ára og hún 63. Slysið átti sér stað með þeim hætti að hjónin óku Ford Mondeo-bíl sínum í veg fyrir Audi-bifreið Guðjóns á þjóðvegi A34 nærri Stafford, í Mið-Englandi. Konan lést á sjúkrahúsi þremur dögum eftir slysið og maðurinn rúmri viku síðar. Greint var frá því í breskum fjölmiðlum að með Guðjóni í bílnum hafi verið synir hans tveir og frændi. "Þetta var hörmulegt atvik og erfið lífsreynsla og ég hef svo sem ekkert frekar um málið að segja," sagði Guðjón Þórðarson. Hann sagði að með úrskurði dánardómstjóra nú væri málinu lokið, en það sé eðlilega mjög viðkvæmt, bæði fyrir hann og syni hans sem með honum voru í bílnum þegar slysið átti sér stað.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Sjá meira