Leikskólakennarar líka í viðræðum 30. september 2004 00:01
Leikskólakennarar standa einnig í kjaraviðræðum við sveitarfélögin en meginkrafa þeirra er að fá sambærileg laun og aðrir kennarar. Félag grunnskólakennara heyr nú harða verkfallsbaráttu en Félag leikskólakennara er einnig undir hatti Kennarasambands Íslands. Kjaraviðræður fyrir hönd 1500 leikskólakennara standa yfir. Aðspurð hvort líka stefni í verkfall á þeim vettvangi segist Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, vona ekki. Hún segir félagið ekki hafa fengið viðbrögð við sínum kröfum og á meðan svo sé þýði ekki að tala um verkfall. Foreldrar fimmtán þúsund barna á leikskólum þurfa því ekki um sinn að hafa áhyggjur. Meginkrafa Félags leikskólakennara er skýr: Sambærileg laun og aðrir kennarar með sambærilega menntun og ábyrgð í starfi. „Þá kröfum byggjum við á sameiginlegum markmiðum Kennarsambandsins sem öll félög standa á bak við,“ segir Björg. Samband íslenskra sveitarfélaga segir á heimasíðu sinni ljóst að ekki sé hægt að fjalla um launaliðinn í kröfugerð leikskólakennara fyrr en niðurstaða er fengin í kjaradeilu grunnskólakennara. Það blasir við að sú niðurstaða mun hafa bein áhrif á leikskólakennara.
Fréttir Innlent Kjaramál Mest lesið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Selfoss stöðvaður í Bretlandi Innlent Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Innlent Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Erlent Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Innlent Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Erlent Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fleiri fréttir Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Takmarka fjölda nemenda utan EES Sjá meira