Ölvun, hass og haglabyssa 13. október 2005 14:41 MYND/Vísir
Lögreglan á Akureyri stöðvaði ökumann á 137 kílómetra hraða á ellefta tímanum í gærkvöld við Ytri vík á Ólafsfjarðarvegi á milli Dalvíkur og Akureyrar. Ökumaðurinn sem er á fimmtugsaldri er grunaður um ölvun við akstur. Í bílnum fannst smáræði af hassi, sem og haglabyssa og skotfæri. Hald var lagt á þetta allt saman og var manninum sleppt að lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst. Bíllinn var án númeraplatna en þær voru nýlega klipptar af honum vegna vangoldinna tryggingagjalda. Maðurinn, sem er búsettur á Akureyri, hefur áður komið við sögu lögreglunnar. Akureyrarlögregla hafði afskipti af fjórum ökumönnum til viðbótar í nótt. Einn sextán ára piltur var tekinn réttindalaus á skellinöðru og jafnaldri hans var stöðvaður undir stýri, grunaður um ölvun. Þá var maður sem sviptur hefur verið ökuleyfi stöðvaður undir stýri, grunaður um ölvun við akstur. Þessum þremur var öllum sleppt að lokinni yfirheyrslu. Undir morgun var svo maður á þrítugsaldri stöðvaður, grunaður um ölvun við akstur. Í bíl hans fannst örlítið af hassi og er það mál í vinnslu.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Ekkert bóli á sleggjunni að ári liðnu Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Sjá meira