Túlka ummælin á ólíka vegu 10. september 2004 00:01 "
Það er alrangt að hér sé um kúvendingu að ræða hjá Halldóri," segir Eiríkur Bergmann Einarsson, sérfræðingur í Evrópumálum við Háskóla Íslands um ræðu utanríkisráðherra á Akureyri. "Það eina nýja í ræðunni er að hann notar orðið nýlendustefnu um sjávarútvegsstefnuna." Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sakaði Halldór um að hafa skipt um skoðun í Fréttablaðinu í gær. Eiríkur Bergmann sem er varaþingmaður Samfylkingarinnar og óumdeilt helsti sérfræðingur flokksins í Evrópumálum telur formanninn taka rangan pól í hæðina. "Halldór útilokar alls ekki aðild að ESB í ræðunni. Það fer ekki á milli að orð Halldórs eru liður í diplómatískri herferð til að þvinga fram viðbrögð Evrópusambandsins um sérstakt stjórnsýslusvæði á Norður-Atlantshafinu. Ræða Halldórs er í rauninni aðeins útfærsla hans á Berlínarræðu hans fyrir tveimur árum. Hann vill fyrst og fremst reyna að knýja fram aukinn sveigjanleika af hálfu ESB í garð Íslands og Noregs til að útiloka þessi ríki ekki frá aðild. Hann fer fram á sveigjanlegar lausnir af svipuðu tagi og önnur ríki hafa áður fengið. Halldór er alls ekkert að loka á aðild heldur er hann að reyna að fá fram pólitískan vilja og pólitískar lausnir af hálfu ESB til að liðka fyrir sjónarmiðum landanna tveggja."
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Innlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Fleiri fréttir Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landinu á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Þrír vasaþjófar handteknir á gistiheimili Laugarneshverfi Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Sjá meira