Ísland, best í heimi! 22. júlí 2004 00:01
Ísland er meðal bestu landa í heimi samkvæmt nýjasta tölublaði bandaríska tímaritsins Newsweek. Í ítarlegri grein blaðsins er fjallað um ýmis lönd sem þykja bjóða upp á einstaka náttúrufegurð og gott líf. Við val á bestu löndunum kemur í ljós að lönd í Norður-Evrópu skipa efstu sætin en m.a. er tekið mið af þáttum á borð við opinbera spillingu, efnahag, heilbrigðis- og félagslega þjónustu, tekjur og lýðræðisþróun. Ísland og önnur Norðurlönd eru meðal bestu landa í heiminum, samkvæmt þessari úttekt Newsweek, og ástæðurnar eru ýmsar. Þar má nefna einsleitni þjóðanna og afburða árangur á ýmsum sviðum og er undirstrikað að þessar litlu þjóðir geti kennt hinum stærri ýmislegt. Þess er sérstaklega getið að samkvæmt alþjóðlegri stofnun sé engin spilling á Íslandi, ekki frekar en í Finnlandi og Danmörku. Í greininni er Ísland jafnframt sagt hafa náð góðum árangri í sjávarútvegi, en ekki bara tengt fiskveiðum beint, heldur einnig í sambandi við tækniþekkingu í greininni.
Innlent Lífið Mest lesið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Einar og Milla eignuðust dreng Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Lífið Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Lífið Ætlar í pásu frá giggum Lífið Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Lífið Fleiri fréttir Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira