Lífið

Fréttamynd

Ung­frú Ís­land teymið svarar fyrir sig

Manúela Ósk Harðardóttir framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland og Elísa Gróa Steinþórsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri segja ásakanir sem hafa verið bornar upp á þær og teymið á bakvið keppnina síðustu daga vera rangar að miklu leyti. Þær séu alltaf opnar fyrir samtali ef einhver hafi neikvæða upplifun af keppninni en að ásakanir um andlegt ofbeldi, fjárkúgun og mismunun séu alvarlegar og ósannar.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fimm­tug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum

Spurning frá 50 ára karlmanni: „Sæl. Við hjónin erum forvitin um swing senuna. Við erum búin að tala við vinafólk okkar sem við umgöngumst töluvert mikið og þau langar til að prófa þetta með okkur. Gæti verið sniðugara að prófa með fólki sem við þekkjum ekki neitt frekar en með vinafólki okkar ?“

Lífið
Fréttamynd

Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur

Tökur standa nú yfir á Íslandi á þriðju þáttaröð af Netflix þáttunum Four Seasons, en mikill viðbúnaður er á Skólavörðustíg og Klapparstíg þar sem tökur fara fram í dag. Barnabókahöfundarnir Gunnar Theodór Eggertsson og Linn Janssen vissu ekki hvar á sig stóð veðrið þegar Hollywood stjarnan Tinna Fey kíkti í útgáfuhóf þeirra í gær.

Lífið
Fréttamynd

„Það voru margir með tár á hvarmi“

Hátíðarstjórnandi Riff segir ýmsa hafa gengið af opnunarmynd hátíðarinnar með tár á hvarmi í gær. Myndin segir frá hinstu för Johns Snorra sem lést við það að ganga upp K2 að vetri til. Það hafi verið mögnuð upplifun að sjá myndina með fjölskyldu og vinum Johns.

Lífið
Fréttamynd

Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie

Ástralska leikkonan Margot Robbie hefur breytt nafni sínu í Margot Ackerley. Hún giftist Tom Ackerley, kvikmyndaframleiðanda, fyrir tíu árum en hélt áfram að nota sitt eftirnafn. Búist er við því að hún muni halda áfram að nota Robbie-nafnið opinberlega og í starfi.

Lífið
Fréttamynd

Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi

Samfélagsmiðlastjarnan Iris Rabaya Au sem jafnframt er kærasta Love Island ofurstjörnunnar Davide Sanclimenti hefur verið fangelsuð þar sem hún gaf ekki upp ofurháan hagnað sinn vegna sölu á rafmyntum. Stjarnan á að sitja inni í átján mánuði, greiða eina milljón pund í sekt og gefa upp lúxusvörur í sinni eigu líkt og bíla og handtöskur.

Lífið
Fréttamynd

Greiðir sér hálfan milljarð í arð

Sögn ehf., félag leikstjórans og kvikmyndaframleiðandans Baltasars Kormáks Baltasarssonar, hagnaðist um 340 milljónir árið 2025. Árið 2024 greiddi hann sér 510 milljónir í arð og í ár gætu arðgreiðslurnar numið 550 milljónum. 

Lífið
Fréttamynd

„Rosa­legt brot á mínu einka­lífi“

Líf húðflúrslistakonunnar Katelyn Larson breyttist gríðarlega þegar kærasti hennar til margra ára öðlaðist alheimsfrægð á örskotsstundu. Sá er leikarinn Hudson Williams sem sló algjörlega í gegn í hlutverki sínu sem Shane Hollander í hokkíástarþáttunum Heated Rivalry. Velgengnin hefur ekki bara verið dans á rósum og hafa aðdáendur ítrekað farið yfir mörk bæði Hudsons og Katelynar.

Lífið
Fréttamynd

Edda með tárin í augunum

Edda Björgvinsdóttir segist vera með tárin í augunum af þakklæti en hún var heiðruð á setningu UngRIFF, kvikmyndahátíð fyrir börn og ungmenni og veitti Halla Tómasdóttir forseti Íslands henni heiðursverðlaunin í Smárabíó. Þá var hátíðin einnig sett í Króksbíói á Sauðárkróki.

Lífið
Fréttamynd

Kynlífsstunur og sjálfs­fróun á tísku­sýningu

Tískurisinn Diesel vakti mikla athygli á tískuvikunni í Mílanó í gær fyrir óvanalega sýningu og ótal marga þátttakendur. Hátt í tvö hundruð manns voru fengnir til að dulbúa sig sem áhorfendur en byrjuðu svo hægt og rólega að stynja, snerta sig og hvert annað á miðri sýningu.

Lífið
Fréttamynd

Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu

Gilhagi ehf., félag Arnalds Indriðasonar rithöfundar, hagnaðist um 113 milljónir árið 2025 og á tæplega 1,4 milljarða í hreina eign. Fyrirtæki Yrsu Sigurðardóttur rithöfundar, Yrsa Sigurðardóttir ehf., hagnaðist um rúmar tuttugu milljónir sama ár. 

Lífið
Fréttamynd

Í kossaflensi á listasýningu

Ástin blómstrar hjá stjörnuparinu Kim Kardashian og Lewis Hamilton. Raunveruleikastjarnan og kappaksturskappinn hafa verið að slá sér upp í marga mánuði og áttu innilega stund á sýningaropnun í Los Angeles um helgina. 

Lífið