Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Knattspyrnudeild Vals hefur gert tveggja ára samning við markmanninn Tómas Blöndal-Petersson en félagið segir frá þessu á miðlum sínum. Íslenski boltinn 7.2.2026 17:34
Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Fjórir leikir voru á dagskrá A-deildar Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld. Fylkir hafði betur gegn ungu liði Breiðabliks og FH valtaði yfir Þrótt Reykjavík. Íslenski boltinn 6.2.2026 21:35
FH sækir sænskan miðvörð Sænski miðvörðurinn Tobias Carlsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH og mun leika með liðinu á komandi tímabili í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 6.2.2026 13:56
Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn 5.2.2026 14:03
Stjarnan sækir miðvörð að vestan Danski miðvörðurinn Gustav Kjeldsen er genginn til liðs við Stjörnuna og gerir tveggja ára samning en hann kemur til félagsins frá Vestra. Íslenski boltinn 3.2.2026 11:05
Kralj fer til Keflavíkur Keflavík hefur samið við vinstri bakvörðinn Anton Kralj fyrir komandi átök í Bestu deildinni en hann kemur til félagsins frá Vestra sem féll niður í Lengjudeild síðasta sumar. Íslenski boltinn 2.2.2026 19:33
Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi Íslandsmeistarar Víkings hafa fest kaup á hinum 21 árs gamla Ármanni Inga Finnbogasyni frá ÍA. Íslenski boltinn 2.2.2026 14:18
„Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Eftir meiðslum hrjáð ár úti í atvinnumennskunni er Bryndís Arna Níelsdóttir komin aftur heim og gengin í raðir ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks. Hvalreki fyrir Blika komist hún aftur á beinu brautina eins og hún stefnir á að gera. Íslenski boltinn 1.2.2026 23:03
Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Njarðvík vann 3-1 endurkomusigur á ÍR þegar að liðin mættust í Lengjubikarnum í fótbolta í Reykjaneshöllinni í dag. Bragi Karl Bjarkason skoraði sitt fyrsta mark fyrir Njarðvík í sínum fyrsta leik fyrir félagið eftir að hafa verið keyptur frá FH á dögunum. Íslenski boltinn 1.2.2026 17:41
Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur hófu keppni í Lengjubikar karla í fótbolta með 2-0 sigri á Grindavík og sextán ára strákur tryggði KR sigur á KA. Fjórum leikjum er lokið í keppninni í dag. Íslenski boltinn 31.1.2026 16:28
Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Valskonur eru Reykjavíkurmeistarar í fótbolta árið 2026 eftir sigur gegn Víkingi Reykjavík í úrslitaleik mótsins í dag. Lokatölur 3-2 sigur Vals. Íslenski boltinn 31.1.2026 15:19
Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Markvörðurinn Guy Smit er orðinn leikmaður Lengjudeildar liðs Njarðvíkur og mun reyna að hjálpa liðinu að komast upp í Bestu deildina undir stjórn Davíðs Smára Lamude sem hann spilaði áður hjá með liði Vestra og varð bikarmeistari með. Íslenski boltinn 31.1.2026 12:45
Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Fótboltamaðurinn Böðvar Böðvarsson, sem var varafyrirliði FH, er ekki inni í áætlunum nýs þjálfara liðsins, Jóhannesar Karls Guðjónssonar, og má finna sér nýtt félag. Íslenski boltinn 28.1.2026 08:31
Berglind Björg ólétt Markadrottning síðasta tímabils í Bestu deild kvenna, Berglind Björg Þorvaldsdóttir, er ólétt og á von á sínu öðru barni. Íslenski boltinn 26.1.2026 21:20
Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Miðjumaðurinn Bjarni Páll Linnet Runólfsson er genginn í raðir Fram. Þá hefur aðalmarkvörður liðsins, Viktor Freyr Sigurðsson, framlengt samning sinn við Fram. Íslenski boltinn 26.1.2026 20:02
Heiðdís leggur skóna á hilluna Heiðdís Lillýardóttir, Íslands- og bikarmeistari með Breiðablik, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Íslenski boltinn 25.1.2026 15:32
Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Víkingur og Þróttur munu mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins. Íslenski boltinn 24.1.2026 16:39
Elísa fer frá Val til Breiðabliks Elísa Viðarsdóttir, fyrrum fyrirliði Vals, er gengin til liðs við Breiðablik í Bestu deild kvenna. Íslenski boltinn 24.1.2026 14:49
Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Knattspyrnumaðurinn Oliver Sigurjónsson gaf það út í kvöld að knattspyrnuskórnir væru komnir upp á hillu. Íslenski boltinn 23.1.2026 21:38
Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Þór/KA kynnti fimm nýja leikmenn í gær en félagið þurfti að senda frá sér leiðréttingu daginn eftir. Íslenski boltinn 23.1.2026 13:02
Sigurður Bjartur á leið til Spánar? FH hefur samþykkt kauptilboð í framherjann Sigurð Bjart Hallsson sem þar með virðist á förum í spænsku C-deildina í fótbolta. Íslenski boltinn 22.1.2026 14:53
Stjarnan selur Adolf Daða til FH Adolf Daði Birgisson hefur yfirgefið herbúðir Stjörnunnar og gengið til liðs við lið FH í Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 22.1.2026 09:06
Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Þór/KA fékk mikinn liðstyrk í dag fyrir komandi tímabil í Bestu deild kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 21.1.2026 21:44
Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Þróttarar fengu flottan liðsstyrk í dag en félagið hefur sótt annan leikmann til FHL, sem féll úr Bestu deild kvenna í fótbolta síðasta haust. Íslenski boltinn 20.1.2026 17:35
Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Tvítuga fótboltakonan Telma Steindórsdóttir er gengin í raðir Stjörnunnar frá Fram og fylgir þar með á eftir þjálfaranum Óskari Smára Haraldssyni sem fór sömu leið eftir síðasta tímabil. Íslenski boltinn 20.1.2026 13:30