Innlent
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 334 ›
Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á öðrum tímanum í dag vegna vélsleðaslyss á Langjökli. Innlent 27.9.2025 14:49
„Gervigreind er líka fyrir heimilið“ „Gervigreindin er framtíðin og nútíðin og skemmtilegt verkfæri sem er virkilega gaman að nota og á erindi við alla,“ segir tölvukennari sem fer víða þessar vikurnar með fyrirlestra um gervigreind. Innlent 27.9.2025 14:03
Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Mjög vel hefur gengið að lagfæra skemmdir á varnargörðum og Hringveginum vestan Jökulsár í Lóni og reiknar Vegagerðin með því að hægt verði að hleypa umferð á veginn klukkan 17:00 síðdegis í dag ef ekkert óvænt kemur upp á. Innlent 27.9.2025 13:52
Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO Snæfellsnes varð í dag fyrsta svæðið á Íslandi til að vera skilgreint sem vistvangur af Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Björg Ágústsdóttir, formaður stjórnar Svæðisgarðsins og bæjarstjóri í Grundarfirði, segir þetta afrakstur áralangs starfs sem Snæfellingar hafa verið í, í umhverfis- og samfélagsmálum. Innlent 27.9.2025 13:48
„Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði ríkissstjórnina hafa sett saman sérstakan húsnæðis- og efnahagspakka. Hún ávarpaði flokksstjórnarfund Samfylkingarinnar á Hellu í dag. Innlent 27.9.2025 13:28
Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Afbrotafræðingur segir þunga dóma í Gufunesmálinu ekki koma á óvart og að mennirnir muni líklegast afplána í fjögur til fimm ár á Litla hrauni. Svo virðist sem að dómar yfir ungu fólki séu að þyngjast nýlega en erfitt að segja hvort það sé vegna aukinnar umræðu um ofbeldi og vopnaburð meðal ungmenna. Innlent 27.9.2025 12:16
Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Þungir dómar í Gufunesmálinu svokallaða koma afbrotafræðingi ekki á óvart. Dómar yfir ungu fólki virðast hafa þyngst á síðustu misserum. Erfitt sé að segja hvort það sé tilkomið vegna aukinnar umræðu um ofbeldi meðal barna. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 27.9.2025 11:48
Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Leiðsögukonan Jessica Zimmerman varð fyrir fantalegri árás af hendi ferðamanns sem snöggreiddist þegar hún tók mynd af ökutæki hans sem hann hafði lagt ólöglega. Maðurinn þröngvaði sér inn í rútu Jessicu og reyndi að hrifsa af henni spjaldtölvu með valdi. Hún lýsir vonbrigðum yfir sinnuleysi lögreglu. Innlent 27.9.2025 11:21
Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Vinna hófst við Hringveginn við Jökulsá í Lóni sem fór í sundur vegna mikilla vatnavaxta um klukkan sex í morgun. Vegurinn fór í sundur á um fimmtíu metra bili. Innlent 27.9.2025 09:28
Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ Lögregluþjónar virðast hafa haft í nógu að snúast í nótt og að miklu leyti vegna ölvunar í miðbænum. Alls voru 79 mál skráð í kerfi lögreglu frá klukkan fimm í gær og til fimm í morgun og gistu tíu í fangaklefa í nótt. Innlent 27.9.2025 07:45
„Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Auður Axelsdóttir, framkvæmdastýra Hugarafls, segir niðurstöður nýrrar Gallup könnunar á þjónustu Hugarafls sýna að þjónusta þeirra og nálgun virkar. Samkvæmt niðurstöðunum líður miklum meirihluta mjög illa við komu til þeirra en líðan batna verulega eftir það. Auður segir mikla þörf á að fjölga starfsfólki og vonar að þessar niðurstöður aðstoði við það. Stjórnvöld þurfi betur að styðja við úrræði sem starfi utan kerfis. Innlent 27.9.2025 07:02
Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Árvakur hf. og Sýn hf. hafa bæði skilað inn umsögn til Alþingis og lagst gegn frumvarpi menningar-, háskóla og nýsköpunarráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Með frumvarpinu er lagt til að hámarkshlutfall fjárveitinga til verkefna lækki úr 25 prósentum niður í 22 prósent, og myndi það þýða að styrkir til fjölmiðla á vegum Sýnar og Árvakurs myndu lækka. Innlent 27.9.2025 00:03
Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að Íslendingar búi vel að því að eiga öflugt almannavarnakerfi, sem geti tekið á hvers kyns vá sem ber að höndum. Viðbragðsaðilar séu vakandi yfir öryggi á flugvellinum og hafi áður nýtt sér dróna. Innlent 26.9.2025 22:08
Jónína vill taka við af Ásmundi Einari Jónína Brynjólfsdóttir hefur tilkynnt um framboð sitt til embættis ritara Framsóknarflokksins. Ásmundur Einar Daðason lét af embættinu í dag, en kosið verður um nýjan ritara á miðstjórnarfundi flokksins 18. október. Innlent 26.9.2025 20:16
„Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Íbúi á stúdentagörðum háskólans segist vilja finna fyrir öryggi en ekki ógn eftir ítrekuð innbrot undanfarið. Óboðnir gestir gerðu sig meðal annars heimakomna í kjallara hússins þar sem þeir gerðu þarfir sínar á gólfið. Innlent 26.9.2025 19:27
Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Gerður Sigtryggsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Fyrrverandi sveitarstjóri, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, hefur þegar lokið störfum og Gerður tekin við. Innlent 26.9.2025 18:53
Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Þungir dómar voru kveðnir upp í Gufunesmálinu svokallaða í dag. Við gerum upp málið í kvöldfréttum og ræðum við verjendur sem sögðu daginn þungann fyrir alla sem að því koma. Innlent 26.9.2025 18:01
Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Verjandi Matthíasar Björns Erlingssonar sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir manndráp í Gufunesmálinu svokallaða segir dómara í málinu ekki taka mið af þeim augljósu hagsmunum sem Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson hafi af því að fegra eigin hlut og sverta þátt Matthíasar. Innlent 26.9.2025 16:32
Anna ljósa fallin frá Anna Eðvaldsdóttir, betur þekkt sem Anna ljósa, er látin 66 ára að aldri eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Hún var ein þekktasta ljósmóðir landsins, starfaði við fagið í tæpa þrjá áratugi og gaf út bækur með góðum ráðum fyrir verðandi og nýbakaða foreldra. Innlent 26.9.2025 15:23
Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Ásmundur Einar Daðason, ritari Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, hefur látið af embætti ritara Framsóknar. Hann segir skilið við stjórnmálin og snýr sér að öðrum verkefnum. Innlent 26.9.2025 15:02
Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið Heilbrigðisráðherra hyggst gera breytingar á kerfi fyrir greiðsluþátttöku sjúkratryggðra um næstu áramót. Breytingarnar, sem eiga að spara Sjúkratryggingum Íslands fjögur hundruð milljónir króna á ári, felast í að bæta þrepi við greiðsluþátttökukerfið. Innlent 26.9.2025 14:44
„Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Katrín Júlíusdóttir fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar og rithöfundur segir af og frá að hún íhugi framboð í komandi sveitarstjórnarkosningum. Framboðstankur hennar sé tómur og hugur hennar sé við glæpasagnaskrif. Innlent 26.9.2025 14:38
Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Nítján ára og sautján ára táningsstúlkur hafa verið dæmdar í tólf mánaða fangelsi fyrir tilraun til að flytja inn Oxycontin. Þær voru gripnar með tuttugu þúsund töflur, sem merktar voru sem Oxycontin, á Keflavíkurflugvelli en töflurnar innihéldu allt annað efni. Það efni er hættulegt en var ekki að finna á lista yfir efni sem bönnuð eru hér á landi. Því voru þær sýknaðar af innflutningnum en sakfelldar fyrir tilraun til innflutnings. Efninu hefur nú verið bætt á bannlista. Innlent 26.9.2025 14:36
Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Ekki hafa liðið níu dagar frá byrjun skólaársins án þess að brotist hafi verið inn í Gamla Garð, stúdentaíbúðir við Háskóla Íslands. Íbúarnir settu upp skilti þar sem taldir eru dagarnir síðan síðast var brotist inn en það er aftur komið niður í núll. Innbrotsþjófarnir létu til skarar skríða í gærkvöldi. Innlent 26.9.2025 13:19
Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson voru dæmdir í sautján ára fangelsi og Matthías Björn Erlingssyni í fjórtán ára fangelsi fyrir að verða Hjörleifi Hauki Guðmundssyni að bana í Gufunesmálinu svokallaða. „Það eru ekki alltaf jólin,“ sagði Stefán skömmu eftir dómsuppsögu. Innlent 26.9.2025 12:17
Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Í hádegisfréttum fjöllum við um dóma sem féllu nú fyrir hádegið í Gufunesmálinu svokallaða. Innlent 26.9.2025 11:42
Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Meirihluta þeirra sem tóku þátt í könnun um bæjarhátíðina Í túninu heima á vef Mosfellsbæjar töldu það góða breytingu að færa stórtónleika frá laugardagskvöldi yfir á sunnudagseftirmiðdegi. Alls töldu 64 prósent breytinguna mjög eða frekar góða og 27 prósent breytinguna frekar eða mjög slæma. Innlent 26.9.2025 11:37
Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Bæjarstjórn Kópavogs féllst á beiðni Sigrúnar Huldu Jónsdóttur, bæjarfulltrúa Framsóknar, um varanlega lausn frá störfum út kjörtímabilið á fundi sínum á þriðjudag. Hún hefur starfað sem deildarstjóri leikskóladeildar Kópavogsbæjar undanfarin misseri. Innlent 26.9.2025 11:27
Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Mikið magn fíkniefnis greindist í blóði ungs ökumanns sem lést í árekstri tveggja fólksbifreiða á hringveginum við Hraunsnef í Borgarfirði í júní í fyrra. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur fíkniefnaneyslu ökumannsins meginorsök slyssins. Innlent 26.9.2025 11:08
Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson voru dæmdir í sautján ára fangelsi og Matthías Björn Erlingssyni í fjórtán ára fangelsi fyrir að verða Hjörleifi Hauki Guðmundssyni að bana í Gufunesmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands. Ekkju hins látna voru dæmdar ellefu milljónir króna í bætur og syni hans sex milljónir. Innlent 26.9.2025 11:02