Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Stjórnvöld á Grænlandi saka stjórnarandstöðuflokkinn Naleraq um að hafa birt trúnaðarupplýsingar úr varnarsamningi við Bandaríkin eftir að samningurinn var ræddur á lokuðum nefndarfundi. Hefur samþykkt samningsins á grænlenska þinginu verið frestað vegna þessa. Erlent 3.11.2026 14:23
Hafnað með afgerandi hætti Tillaga um að Elisabeth Thand Ringqvist verði næsti forsætisráðherra Svíþjóðar var felld í sænska þinginu með afgerandi hætti nú eftir hádegið. Ljóst var fyrir atkvæðagreiðsluna að Ringqvist væri ekki með meirihluta þingmanna á bak við sig og færast Svíar sífellt nær þeim möguleika að kjósa þurfi upp á nýtt. Erlent 3.11.2026 13:25
Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Dómstóll í Abbotsford í Kanada hefur dæmt Íslendinginn Jóhann Sveinsson í eins og hálfs árs fangelsi fyrir dreifingu og vörslu barnaníðsefnis. Jóhann játaði sök í desember fyrir tæpum tveimur árum eftir að hafa flúið réttvísina um nokkurt skeið þar á undan. Erlent 3.11.2026 12:54
Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Tölvuþrjótar réðust gegn matvöruverslunum í Svíþjóð í morgun með þeim afleiðingum að hitastig í kælum og frystiskápum rauk upp úr öllu valdi. Árás af svipuðum toga var gerð í Frakklandi á dögunum og brugðust íslensk fyrirtæki við í kjölfarið. Erlent 2.11.2026 08:43
Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Bandarískir kjósendur ganga að kjörborðinu á morgun, þriðjudag, í kosningum sem bera þess merki að geta markað svokallaða bláa flóðbylgju. Demókratar eru með byr undir báðum vængjum fyrir kosningarnar, ef marka má kannanir, og má meðal annars rekja þennan meðbyr til sögulegra óvinsælda Donalds Trump. Erlent 2.11.2026 08:33
„Svívirðileg svik“ Þingkona demókrata í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur lýst yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í öldungadeildarkosningunum í ríkinu. Ákvörðunin kemur í kjölfar harðvítugra deilna við frambjóðanda eigin flokks en spennan fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun nálgast nú suðupunkt. Erlent 2.11.2026 06:34
Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Netárásir voru gerðar á almannavarnarkerfi bæði Úkraínumanna og Rússa í nótt með þeim afleiðingum að fölsk skilaboð voru send á almenning um yfirvofandi árásir. Í tilefni Rússa virðist sem hluti almennings hafi verið varaður við því að kjarnorkuvopnaárás væri yfirvofandi. Erlent 2.11.2026 06:23
Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Yfirvöld í Florídaríki í Bandaríkjunum rannsaka nú slys eftir að flugvél með níu manns um borð hrapaði í íbúðahverfi í Palm Beach síðdegis á sunnudag. Erlent 1.11.2026 21:32
Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Sautján starfsmenn Disney World og Universal Studios eru meðal þeirra 281 sem grunaðir eru í umfangsmiklu lögreglumáli í Flórída í Bandaríkjunum er varðar mansal og kynferðisbrot gegn börnum. Erlent 1.11.2026 20:40
Yfirhalning hafi verið nauðsynleg Pólski forsætisráðherrann Donald Tusk hefur heitið því að stjórnlagadómstóll landsins muni starfa í samræmi við lög í kjölfar þess að forsetinn Karol Narwoci sakaði Tusk um að taka yfir dómstólinn. Tusk segir að yfirhalningin á dómstólum hafi verið nauðsynleg. Erlent 1.11.2026 20:12
„Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Mjög miklar líkur eru á að Demókratar vinni sigur í báðum þingdeildum í Bandaríkjunum í kosningum á þriðjudag að sögn sérfræðings um bandarísk stjórnmál. Fari svo þá blasi við að stofnaðar verði rannsóknanefndir sem muni skoða embættisaðgerðir Trump Bandaríkjaforseta og ríkisstjórnar hans. Erlent 1.11.2026 14:32
Barist um samband Búlgaríu við Rússland Búlgarar ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga sem hefur einkennst af umræðu um öryggisógnir og áhyggjur af efnahagsmálum. Erlent 1.11.2026 13:39
Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Efnt var til mótmæla í ríflega þrjátíu borgum Þýskalands um helgina en þau eru skipulögð af ungliðahreyfingu sem mótmælir herskyldu, hækkandi framfærslukostnaði og krefst aukinnar fjárfestingar í menntakerfinu og aðgerða í loftslagsmálum. Mótmælin fóru mestmegnis friðsamlega af stað í gærmorgun en þegar tók að rökkva færðist harka í leikinn. Erlent 1.11.2026 12:49
Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Spænska lögreglan hefur handtekið tvo á eyjunni Tenerife þar sem þeir eru grunaðir um að skipuleggja óeirðir og skemmdarverk sem voru sögð myndu eiga sér stað í Santa Cruz og við amerísku ströndina. Erlent 1.11.2026 00:11
Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Borgaryfirvöld í bandarísku borginni Palm Desert fengu innblástur frá Akureyri þegar hjörtu voru um tíma sett á umferðarljós. Starfsmaður borgarinnar segir uppátækið hafa gefist vel til og segir margt að læra af Íslendingum. Erlent 31.10.2026 21:00
Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Óeirðalögregla er komin að stjórnlagadómstól Póllands vegna harðnandi deilu milli ríkisstjórnarinnar og æðstu dómara dómstólsins. Reynir lögregla að koma í veg fyrir að mótmælendur komist inn í dómshúsið. Erlent 31.10.2026 12:25
Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf víða í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að búa sig undir þriðju helgi mótmæla þar í landi. Lestarstöðvum í París hefur verið lokað og víða hefur verið neglt fyrir glugga verslana. Þá eru þýsk yfirvöld með varann á vegna mótmæla í yfir þrjátíu borgum Þýskalands í dag. Erlent 31.10.2026 09:08
Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Bandaríkjastjórn hefur samþykkt sölu á fimm hundruð Patriot-eldflaugum til Úlraínumanna en Patriot-varnarkerfið er Úkraínumönnum nauðsynlegt í vörnum sínum gegn rússneskum skotflaugum. Erlent 31.10.2026 07:54
Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins Lögreglan í Skotlandi hefur hafið athugun á ferðum Andrew Mountbatten-Windsor, Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell til Balmoral-kastala. Konungsfjölskyldan hefur um áratugaskeið notað kastalann sem sumardvalarstað sinn en rannsókn lögreglu snýr meðal annars að hvort konum hafi verið smyglað í kastalann. Erlent 30.10.2026 15:49
„Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Fanginn Christa Pike hefur loks tjáð sig opinberlega eftir að aftaka hennar mistókst í september. Það hefur ekki liðið það augnablik frá atvikinu þar sem hún hefur ekki upplifað sársauka. Hún segist hafa vaknað ringluð og í sársauka. Erlent 30.10.2026 15:19
„Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað Novaya Gazeta, einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands, verður lokað. Forsvarsmenn miðilsins segja yfirvöld í Rússlandi hafa „drepið“ hann með sífellt auknum þrýstingi á undanförnum árum. Rekstrinum verður hætt þann 9. nóvember, rúmum þremur áratugum eftir að fyrsta dagblaðið var gefið út. Erlent 30.10.2026 13:01
„Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Donald Trump hætti í gær við að fara á tvo kosningafundi í Iowa og Kansas um helgina. Kannanir benda til þess að jafnt sé á milli frambjóðenda í báðum ríkjum og er stjórn Repúblikanaflokksins á öldungadeildinni í óvissu. Þrátt fyrir það sögðu leiðtogar Repúblikanaflokksins að hætt hefði verið við kosningafundina vegna þess að frambjóðendum flokksins vegnaði svo vel þar og að Trump þyrfti því ekki að heimsækja ríkin. Erlent 30.10.2026 10:44
Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Úkraínumenn gerðu í morgun umfangsmikla árás á stóra olíuvinnslu í Samara-héraði. Þar með bundu þeir enda á tveggja vikna árásahlé sem Úkraínumenn höfðu komið á vegna þrýstings frá ríkisstjórn Bandaríkjanna. Árásin var gerð eftir að Rússar felldu fjölda óbreyttra borgara í árásum í Úkraínu í gær. Erlent 30.10.2026 09:47
Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Þrír dómarar við áfrýjunardómstól Viktoríuríkis í Ástralíu vísuðu í dag frá áfrýjun Erin Patterson, ástralska sveppamorðingjans svokallaða, og þyngdu refsingu hennar með því að fjarlægja möguleikann á því að hún yrði einhvern tímann látin laus úr fangelsi. Erlent 30.10.2026 07:18