Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Tónlistarhátíðin Kveldúlfur verður haldin í annað sinn um helgina. Hátíðin fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram. Tónlist 13.8.2026 13:02
Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlistarkonan Tatjana Dís er rísandi stjarna í íslensku tónlistarsenunni, syngur í hljómsveitunum ex.girls og digital ísland og hefur gefið út nokkra slagara undir eigin nafni. Nýjasta lag Tatjönu er ábreiða af laginu „Einhver elskar mig“ eftir Pál Óskar sem henni fannst tilvalið að endurvekja. Tónlist 13.8.2026 10:10
Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Eurovision, evrópska söngvakeppnin, verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí á næsta ári. Söngkonan Dara sigraði keppnina með lagið Bangaranga í maí í Vínarborg í maí á þessu ári. Tónlist 13.8.2026 09:13
Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Söngvarinn Guðjón Þorgils Kristjánsson, sem sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna fyrr á árinu, flytur lag Hinsegin daga í ár. Lagið „Framávið“ er áminning til þeirra sem hafa ratað af réttri braut um að aldrei sé of seint að snúa við. Tónlist 31.7.2026 15:20
Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa „Markhópurinn okkar vill syngja úr sér lungun, komast heim á skikkanlegum tíma og vakna svo eldhress daginn eftir til að fara með barnabörnin í ungbarnasund. Svona er lífið“ segir Addi Fannar, gítarleikari Skítamórals en hljómsveitin stendur fyrir sveitaballi um Verslunarmannahelgina. Tónlist 29.7.2026 10:07
Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason segist hættur að gigga fyrir aðra og muni héðan í frá einungis koma fram á sínum eigin tónleikum. Ekki sé um markaðstrix að ræða og hann vinni nú að því að afbóka sig á öll gigg næstu misseri. Patrik vakti athygli um helgina í partýi Patreks Jaime fyrir að bauna á fólk úr bransanum og lýsa því yfir að þjóðhátíðarlag Herra hnetusmjörs og Birgittu Haukdal væri rusl. Tónlist 28.7.2026 10:19
Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Rapparinn Daniil hefur nú gefið út nýtt lag ásamt bandaríska tónlistarmanninum Kodak Black en hann segir útgáfuna hafa komið honum í opna skjöldu. Sá síðarnefndi hefur verið gríðarlega vinsæll síðasta áratuginn og um þrjátíu milljónir manns hlusta á lögin hans í hverjum mánuði. Hann hefur unnið að lögum ásamt Bruno Mars, Travis Scott, Gucci Mane og Future svo dæmi séu tekin. Tónlist 23.7.2026 15:42
Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Íslenska indírokksveitin Superserious gefur út nýtt efni nú um hásumar en lagið My phone or something verður aðgengilegt aðdáendum á morgun, föstudaginn 17. júlí. Er þetta önnur smáskífa af væntanlegri breiðskífu sveitarinnar sem mun bera nafnið Superserious or something. Tónlist 16.7.2026 23:40
Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tíu óútgefin lög sem tónlistarmaðurinn David Bowie samdi og tók upp snemma á ferli sínum verða gefin út í september þessa árs. Þegar þau voru tekin upp gekk hann undir listamannanafninu Davie Jones en breytti því skömmu seinna til að forðast að vera ruglað saman við söngavarann Davy Jones úr hljómsveitinni The Monkees. Tónlist 16.7.2026 19:10
„Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Þungarokkshljómsveitin Manowar snýr til Íslands í annað sinn í nóvember þessa árs og heldur tvenna tónleika í Hörpu, en sveitin er sem stendur á tónleikaferðalagi um heiminn. Uppselt var á tónleika Manowar í Reykjavík síðasta sumar en meðal þeirra sem lögðu leið sína í salinn Silfurberg var Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands. Tónlist 16.7.2026 10:01
„Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Formaður Félags íslenskra hljómlistamanna segir íslenska tónlist eiga undir högg að sækja á streymisveitunni Spotify. Á sama tíma heyja tónlistarmenn stríð við ógrynni af gervigreindartónlist sem flæðir inn á streymisveituna. Tónlist 13.7.2026 20:32
Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Kryddpían Mel C var næstum því rekin úr stúlknabandinu Spice Girls eftir orðaskak við samstarfskonu sína Viktoríu Beckham. Þetta gerðist eftir BRIT verðlaunahátíðina fyrir tuttugu árum síðan en Mel C rifjaði atvikið upp í hlaðvarpi á dögunum. Tónlist 13.7.2026 13:31
Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Fyrir átta árum kynntist heimurinn sænska táningnum Gretu Thunberg og nú ætlar litla systir hennar, hin tvítuga Beata Ernman Andersson, að fanga athygli heimsins. Systurnar eru eins og svart og hvítt, Greta er alvarlegur aðgerðasinni meðan Beata er flippuð tónlistarkona sem elskar að fara í spíkat og stefnir á að verða heimsfræg poppstjarna. Tónlist 13.7.2026 12:23
Innipúkunum fjölgar enn Elín Hall, Ízleifur, GDRN og Joey Christ eru meðal þeirra sem hafa bæst við hóp listamannanna sem koma fram á Innipúkanum í Austurbæjarbíói um verslunarmannahelgina. Tónlistarhátíðin stendur yfir í þrjá daga líkt og vanalega en hún hefur verið haldin árlega síðan 2002 að undanskildum tveimur „mögrum kóvid-árum“. Tónlist 9.7.2026 14:46
Bonnie Tyler er látin Velska söngkonan Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Tyler var þekkt fyrir sína hásu rödd, kom fyrst fram á sjónarsviðið á seinni hluta áttunda áratugarins og varð ein stærsta söngkona þess níunda með slögurum á borð við „Total Eclipse of the Heart“ og „Holding Out for a Hero“. Tónlist 9.7.2026 09:23
Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlistarmaðurinn Elvar hélt útgáfupartý með Nova á SkýBar síðasta fimmtudag þar sem hann frumflutti nýja ábreiðu af súperhittaranum „Hlið við hlið“ eftir Friðrik Dór. Stemmingin var við völd og gíraðir gestir sötruðu á svalandi veigum. Tónlist 7.7.2026 12:30
Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi „Til að gera langa sögu stutta þá er ég með athyglisbrest á hæsta stigi. Fyrsta útgáfan datt óvart út af streymisveitum og ég veit ekki einu sinni hvenær það var,“ segir tónlistarkonan Elísabet Eyþórsdóttir, betur þekkt sem Beta. Hún var að senda frá sér lagið „Do It On My own“, í annað sinn, nú sjö árum seinna. Tónlist 7.7.2026 09:06
Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Bylgjan fór í loftið 28. ágúst 1986 og fagnar því fjörutíu ára afmæli í ár. Af því tilefni kom landslið íslenskra söngvara saman og tók upp slagarann „Lífið er lag“ eftir súpergrúppuna Módel í sérstakri fjörutíu ára afmælisútgáfu sem var frumflutt á Bylgjunni í dag. Tónlist 3.7.2026 14:57
Söngvari YMCA látinn Victor Willis, bandarískur söngvari diskósveitarinnar Village People sem var geysivinsæl á áttunda áratugnum fyrir slagarann YMCA, er látinn 74 ára að aldri. Tónlist 1.7.2026 09:10
Halldór Haraldsson er látinn Halldór Haraldsson, píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lést í gær, þann 29. júní, þá 89 ára gamall. Foreldrar hans voru Haraldur Halldórsson og Hólmfríður Gísladóttir en hann lætur eftir sig eiginkonu, tvö börn, barnabörn og barnabarnabörn. Tónlist 30.6.2026 17:14
Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Söngkonan Laufey Lín er lofsungin af starfsmönnum kínverska sendiráðsins á Íslandi. Laufey Lín er stödd í Kína þessa dagana á tónleikaferðalagi. Tónlist 27.6.2026 14:02
Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar sem hefur sett svip sinn á skemmtanalíf höfuðborgarbúa síðustu sumur en í ár eru tíu ár frá því að hátíðin var fyrst haldin. Meðal þeirra sem fram koma á opnunarkvöldi hátíðarinnar þetta árið er hljómsveitin Botnleðja en hátíðin stendur yfir þrjá daga í viku fram að frídegi verslunarmanna. Tónlist 25.6.2026 22:25
Quarashi hyggst „Do it again“ Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi. Tónlist 24.6.2026 15:56
Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Poppstjarnan knáa Olivia Rodrigo hefur sett á laggirnar tónlistarhátíð í Kaliforníu þar sem einungis tónlistarkonur koma fram. Rodrigo stígur sjálf á stokk ásamt úrvalsliði einhverra öflugustu tónlistarkvenna í heimi. Tónlist 23.6.2026 10:01