Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Snekkja í eigu skattsvikara og fyrrverandi milljarðamærings frá Rússlandi sigldi inn Eyjafjörðinn nú í morgun. Ekki liggur fyrir hvort eigandinn sé um borð. Lífið 21.3.2026 14:16
Nicholas Brendon er látinn Bandaríski leikarinn Nicholas Brendon er látinn, 54 ára að aldri. Hann var hvað þekktastur fyrir að fara með hlutverk Xander Harris í sjónvarpsþáttunum vinsælu Buffy the Vampire Slayer. Lífið 21.3.2026 09:53
Fór lögblind í gegnum doktorsnám „Ekkert af þessu kemur af sjálfu sér,“ segir Rósa María Hjörvar, sem nýlega varði doktorsritgerð í bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Með vörninni náði hún sögulegum áfanga sem fyrsti lögblindi einstaklingurinn til að ljúka slíku námi við skólann. Árangurinn er stór áfangi í hennar eigin lífi, en hefur jafnframt víðtækari merkingu fyrir samfélag blindra og sjónskertra á Íslandi. Þrátt fyrir framfarir á síðustu árum bendir Rósa María á að margt sé enn ógert þegar kemur að aðgengi innan háskólans og samfélagsins almennt. Lífið 21.3.2026 08:02
Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að taka nýjustu þáttaröð The Bachelorette af dagskrá eftir að myndskeið af raunveruleikastjörnunni Taylor Frankie Paul, piparjónku seríunnar, að beita fyrrverandi kærasta sinn heimilisofbeldi, fór í dreifingu. Frumsýna átti þáttaröðina eftir þrjá daga. Lífið 19.3.2026 21:35
Magnús Hlynur í Efstaleitið Magnús Hlynur Hreiðarsson, einn ástsælasti fréttamaður þjóðarinnar, hefur lokið störfum á fréttastofu Sýnar og hefur á morgun störf á fréttastofu Ríkisútvarpsins. Lífið 19.3.2026 20:45
Afroman fagnaði sigri gegn sjö lögregluþjónum Rapparinn Joseph Edgar Foreman, betur þekktur sem Afroman, hafði betur gegn sjö lögregluþjónum sem höfðuðu meiðyrðamál gegn honum vegna myndefnis sem hann birti af þeim í tónlistarmyndbandi við lagið „Lemon Pound Cake“ og textum af samnefndri plötu. Afroman hæddist að þeim með myndefni úr öryggismyndavélum af því þegar þeir gerðu rassíu á heimili hans, söng svo um að hafa sofið hjá eiginkonu eins lögregluþjónsins og rappaði um munnmök annars þeirra. Lífið 19.3.2026 15:13
Þegar kvikmyndagerðar- og tónlistarfólk kemur saman gerast ótrúlegir hlutir Myndband ársins 2026 að mati hlustenda Bylgjunnar og FM957 er við lagið Vopn með Birni og Aron Can í leikstjórn Erlendar Sveinssonar. Erlendur tók við verðlaununum og sagði ótrúlega hluti gerast þegar kvikmyndagerðarfólk og tónlistarfólk kæmi saman. Tónlistarmyndbönd eigi nú ákveðna endurkomu. Lífið 19.3.2026 12:34
Helstu einkenni breytingaskeiðsins og mögulegar lausnir Um helmingur mannkyns fer á breytingaskeiðið og geta fylgikvillar þess verið fleiri en konur kæra sig um að kunna að telja. Á meðal kvilla eru þurrkur í leggöngum og áreynsluþvagleki og er hægt að vinna bug á þessum óþægindum með staðbundnu estrógeni sem smurt er á kynfæri. Lífið 19.3.2026 12:02
Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. Lífið 19.3.2026 07:02
Hvað veistu um… Akureyri? Akureyri er oft kölluð höfuðstaður Norðurlands og það er auðvelt að skilja hvers vegna. Bærinn stendur við innarlega í Eyjafirði, umkringdur fjöllum og náttúru sem breytist með árstíðunum. Lífið 18.3.2026 20:00
Gæðastund með gæðablóðum Leikritið Gæðablóð var frumsýnt fimmtudaginn 12. mars á stóra sviði Þjóðleikhússins. Fjöldi góðra gesta úr leikhússenunni, menningarbransanum og öðrum geirum mætti til að sjá þá Unnstein Manúel Stefánsson, Jónmund Grétarsson og Davíð Þór Katrínarson stíga á svið. Lífið 18.3.2026 16:41
Ástrós getur elskað fleiri en einn í einu: „Hvernig hefurðu tíma í þetta?“ Ástrós Erlu Benediktsdóttur er margt til lista lagt. Hún leiðir einstaklinga, pör og hópa í andlegri sjálfsvinnu en hún hefur sjálf góða reynslu af því að horfast í augu við sig sjálfa og laga það sem var brotið. Ástrós hlustaði ekki á eigið innsæi bróðurpart sinnar ævi og þóknaðist öðrum í staðinn fyrir sér sjálfri. Lífið 18.3.2026 13:01
Hollywood-stjarna blastar íslenskri hljómsveit Íslenska danssveitin Inspector Spacetime hefur vakið athygli víða um heim á undanförnum mánuðum og voru þau meðal annars með lag í vinsælli Apple auglýsingu. Þau virðast sömuleiðis eiga mjög fræga aðdáendur. Lífið 18.3.2026 10:05
„Mikilvægast að vera með hreina samvisku“ Finnur Bjarnason, óperustjóri nýrrar þjóðaróperu, skilur gagnrýni á ráðningu sína en telur sig þó ekki hafa haft forskot á aðra umsækjendur vegna stöðu sinnar. Mikilvægast sé að vera með hreina samvisku. Samvinna við Þjóðleikhússtjóra hafi gengið vel og trúir hann að muni ganga vel áfram. Lífið 18.3.2026 07:00
„Þetta var alltaf stóri draumurinn“ „Það er eiginlega bara í dag sem ég er að ná að setjast niður með þessu öllu saman,“ segir förðunarfræðingurinn Auður Jónsdóttir sem hefur verið búsett í Los Angeles síðastliðinn áratug. Síðastliðinn mánuð hefur hún fylgt Laufeyju Lín í Evróputúr stjörnunnar og farðað hana sem hún segir algjört draumaverkefni. Blaðamaður ræddi við Auði um þetta spennandi verkefni og tímamót í hennar lífi. Lífið 17.3.2026 20:00
Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Louis Theroux tæklar Karlahvelið (e. the Manosphere) í nýjustu heimildarmynd sinni en það er samansafn áhrifavalda, vefsíðna og umræðuhópa sem boða róttæka karlmennsku og kvenfjandsamleg viðhorf. Theroux ræðir þar við menn sem hafa hagnast á slíku en á einum tímapunkti í myndinni bregður fyrir tveimur ungum íslenskum drengjum sem biðja um mynd með einum áhrifavaldinum. Lífið 17.3.2026 15:09
Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu Hvað kostar að taka bílpróf í dag? Hvað þarf að taka marga ökutíma og hversu margir falla á bóklega prófinu sem mörgum finnst hálfkvikyndislegt. Lífið 17.3.2026 12:00
„Jú, ég sá einhverja fræga“ Friðrik Hilmarsson var meðal þeirra sem fögnuðu innilega þegar norska kvikmyndin Sentimental Value var valin besta erlenda kvikmyndin. Friðrik er titlaður framleiðandi eða „executive producer“ myndarinnar en hann á að baki gott samstarf með leikstjóranum Joachim Trier. Lífið 17.3.2026 10:45
Villi Neto skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Taskmaster, eða Þrautakóngur á íslensku, hóf göngu sína á Sýn+ fyrir helgi. Þættirnir eru upprunalega frá Bretlandi og komu til sögunnar fyrir rúmlega áratug síðan og eru þáttaraðirnar þar orðnar tuttugu talsins. Lífið 17.3.2026 10:01
Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Slysa- og bráðlæknir segir vannýtt tækifæri innan heilbrigðiskerfisins í heilsueflingu og forvörnum. Hún telur venjur nútímasamfélagsins leiða til svokallaðrar „birtuvillu“ þar sem líkamsklukkan ruglast. Sjálf notar hún þá ekki sólarvörn en tekur fram að sólbruni geti haft alvarlegar afleiðingar. Lífið 17.3.2026 06:31
Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Hin tólf ára gamla Sóley Stella Ásbergsdóttir átti ógleymanlegt augnablik með Laufey í Kórnum um helgina þegar söngkonan gaf henni og sérsaumaðri tösku hennar sérstakan gaum fyrir framan þúsundir tónleikagesta og tileinkaði henni lag. Sóley segist aldrei munu gleyma augnablikinu. Lífið 16.3.2026 20:57
Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, hefur tryggt sér sæti í aðalkeppni Bocuse D’Or. Hún keppti í dag í stærstu kokkakeppni Evrópu og er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd. Þema hennar í keppninni var fjallkonan og íslenski þjóðbúningurinn. Lífið 16.3.2026 19:21
Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Skipuleggjendur risatónleika Laufeyjar útveguðu pylsustand baksviðs fyrir söngkonuna og teymið hennar en margir af erlendum samstarfsmönnum hennar voru afar spenntir fyrir því að smakka íslenska pulsu. Lífið 16.3.2026 18:47
Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls „Þetta er mjög gott í hjartað,“ segir Daníel Sæberg sem safnaði 2,7 milljónum á dögunum fyrir börn í sorg á Græna deginum. Daníel missti son sinn Jökul Frosta árið 2021 og hefur síðastliðin þrjú ár haldið Græna daginn á afmæli Jökuls. Lífið 16.3.2026 18:02