Erlent

Fréttamynd

Reynslumikill flug­maður við stjórnina

Flugvélinni sem brotlenti í Palm Beach í Bandaríkjunum á dögunum var flogið af mjög reynslumiklum flugmanni. Allir níu sem voru um borð í flugvélinni létu lífið þegar hún hrapaði skyndilega til jarðar í íbúðarhverfi en enginn lést á jörðu niðri. Tvö ung börn voru um borð í flugvélinni, ásamt foreldrum þeirra og barnfóstru.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sjö flug­vélum lent vegna sprengju­hótana

Lenda þurfti sjö farþegaflugvélum í Evrópu í dag vegna sprengjuhótana. Þá barst einnig hótun gegn skemmtiferðaskipi en engar sprengjur hafa í kjölfarið fundist. Yfirvöld í nokkrum ríkjum Evrópu ætla að vinna saman að rannsókn málsins.

Erlent
Fréttamynd

„Tíminn er á þrotum“

Útlit er fyrir að flugvél sem hrapaði nánast lóðrétt til jarðar í Palm Beach í Bandaríkjunum í gær hafi verið að rifna í sundur á leiðinni niður. Rannsakendur búast við því að brak úr flugvélinni megi finna langt frá því þar sem flugvélin brotlenti í íbúðarhverfi. Níu voru um borð og létu allir lífið.

Erlent
Fréttamynd

Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði

Rússar vörpuðu sprengjum á skóla í sunnanverðri Úkraínu í dag, þar sem íbúar bæjar nærri víglínunni höfðu komið saman til að fá mataraðstoð. Í heildina vörpuðu Rússar tíu stórum sprengjum á skólann í nokkrum bylgjum. Að minnsta kosti 26 eru látnir og minnst tuttugu er saknað.

Erlent
Fréttamynd

Kælar mat­vöru­verslana hakkaðir á ný

Tölvuþrjótar réðust gegn matvöruverslunum í Svíþjóð í morgun með þeim afleiðingum að hitastig í kælum og frystiskápum rauk upp úr öllu valdi. Árás af svipuðum toga var gerð í Frakklandi á dögunum og brugðust íslensk fyrirtæki við í kjölfarið.

Erlent
Fréttamynd

Ríkin sem barist er um: Blá flóð­bylgja eða smáskvetta?

Bandarískir kjósendur ganga að kjörborðinu á morgun, þriðjudag, í kosningum sem bera þess merki að geta markað svokallaða bláa flóðbylgju. Demókratar eru með byr undir báðum vængjum fyrir kosningarnar, ef marka má kannanir, og má meðal annars rekja þennan meðbyr til sögulegra óvinsælda Donalds Trump.

Erlent
Fréttamynd

„Svívirði­leg svik“

Þingkona demókrata í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur lýst yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í öldungadeildarkosningunum í ríkinu. Ákvörðunin kemur í kjölfar harðvítugra deilna við frambjóðanda eigin flokks en spennan fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun nálgast nú suðupunkt.

Erlent
Fréttamynd

Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínu­manna og Rússa

Netárásir voru gerðar á almannavarnarkerfi bæði Úkraínumanna og Rússa í nótt með þeim afleiðingum að fölsk skilaboð voru send á almenning um yfirvofandi árásir. Í tilefni Rússa virðist sem hluti almennings hafi verið varaður við því að kjarnorkuvopnaárás væri yfirvofandi.

Erlent
Fréttamynd

Yfirhalning hafi verið nauð­syn­leg

Pólski forsætisráðherrann Donald Tusk hefur heitið því að stjórnlagadómstóll landsins muni starfa í samræmi við lög í kjölfar þess að forsetinn Karol Narwoci sakaði Tusk um að taka yfir dómstólinn. Tusk segir að yfirhalningin á dómstólum hafi verið nauðsynleg.

Erlent
Fréttamynd

„Rannsóknar­nefndir verða stofnaðar“

Mjög miklar líkur eru á að Demókratar vinni sigur í báðum þingdeildum í Bandaríkjunum í kosningum á þriðjudag að sögn sérfræðings um bandarísk stjórnmál. Fari svo þá blasi við að stofnaðar verði rannsóknanefndir sem muni skoða embættisaðgerðir Trump Bandaríkjaforseta og ríkisstjórnar hans.

Erlent
Fréttamynd

Snerist upp í of­beldi þegar nóttin skall á

Efnt var til mótmæla í ríflega þrjátíu borgum Þýskalands um helgina en þau eru skipulögð af ungliðahreyfingu sem mótmælir herskyldu, hækkandi framfærslukostnaði og krefst aukinnar fjárfestingar í menntakerfinu og aðgerða í loftslagsmálum. Mótmælin fóru mestmegnis friðsamlega af stað í gærmorgun en þegar tók að rökkva færðist harka í leikinn.

Erlent
Fréttamynd

Búa sig undir þriðju helgi mót­mæla

Sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf víða í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að búa sig undir þriðju helgi mótmæla þar í landi. Lestarstöðvum í París hefur verið lokað og víða hefur verið neglt fyrir glugga verslana. Þá eru þýsk yfirvöld með varann á vegna mótmæla í yfir þrjátíu borgum Þýskalands í dag. 

Erlent
Fréttamynd

Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumar­búðir kóngafólksins

Lögreglan í Skotlandi hefur hafið athugun á ferðum Andrew Mountbatten-Windsor, Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell til Balmoral-kastala. Konungsfjölskyldan hefur um áratugaskeið notað kastalann sem sumardvalarstað sinn en rannsókn lögreglu snýr meðal annars að hvort konum hafi verið smyglað í kastalann.

Erlent
Fréttamynd

„Þú ert ó­geðs­legur, komdu þér í form“

Donald Trump hætti í gær við að fara á tvo kosningafundi í Iowa og Kansas um helgina. Kannanir benda til þess að jafnt sé á milli frambjóðenda í báðum ríkjum og er stjórn Repúblikanaflokksins á öldungadeildinni í óvissu. Þrátt fyrir það sögðu leiðtogar Repúblikanaflokksins að hætt hefði verið við kosningafundina vegna þess að frambjóðendum flokksins vegnaði svo vel þar og að Trump þyrfti því ekki að heimsækja ríkin.

Erlent