Innlent

Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi

Dómsmálaráðherra segir algjört stefnuleysi hafa ríkt um árabil í innflytjendamálum og að stéttskipting hafi í kjölfarið verið flutt inn. Mikilvægt sé að gera bæði kröfur til fólks sem hér sest að og til Íslendinga um móttöku þess fólks.

Innlent

Smá hökt að­eins byrjunin á ein­hverju stór­kost­legu

Skólastjóri Hólabrekkuskóla segir að smá hökt á fyrsta skóladegi hljóti að vera byrjunin á einhverju stórkostlegu í unglingadeild skólans. Á annað hundrað nemendur fóru snemma heim en reiknað er með að öryggisúttekt ljúki í dag. Allir mæta svo í nýtt húsnæði í fyrramálið og hefja námið samkvæmt stundaskrá.

Innlent

Full­viss um að hann myndi ekki lifa þetta af

Heilbrigðisstarfsfólk bar vitni í dag við aðalmeðferð Reykholtsmálsins. Sálfræðingur segir brotaþola með einkenni áfallastreituröskunar. Tannlæknir og læknir staðfestu hluta áverkanna, þar á meðal tvíbrotinn kjálka og brotnar tennur.

Innlent

Hvetur al­menning til að vara sig á gerviaðgöngum

Netöryggissveitin CERT-IS fylgist grannt með notkun gerviaðganga á samfélagsmiðlum nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB. Tilgangur þeirra er að ýta undir upplýsingaóreiðu að sögn forstöðumanns sem hvetur almenning til að vera á varðbergi.

Innlent

Hnífamaður reyndist vera að tína blóm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók erlendan ferðamann í gærkvöldi eða nótt eftir að tilkynning barst um einstakling með hníf. Viðkomandi var hins vegar látinn laus eftir að í ljós kom að hann hafði verið að nota hnífinn til skera blóm og tína.

Innlent

Tals­verð úr­koma í vændum í dag

Von er á talsverðri úrkomu suðaustan- og vestanlands í dag, vegna lægðar sem fer norður yfir landið. Rigningarbakkinn fer yfir landið og fylgir honum strekkings suðaustanátt. Á vestanverður landinu verður norðan og norðaustanátt.

Innlent

„Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir í­búana í hverfinu“

Ein fárra leiða inn og út úr íbúðahverfinu á Kársnesi hefur verið lokuð vegna framkvæmda síðan í júlí en áætlað er að þeim ljúki í síðasta lagi í október og þá sé unnt að opna fyrir umferð út úr hverfinu á ný. Verið er að leggja nýja stofnlögn til að tryggja íbúum nægt heitt vatn til framtíðar en upplýsingafulltrúi Veitna segir mjög skiljanlegt að íbúum sé farið að finnast þetta heldur tímafrekar framkvæmdir.

Innlent

Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði upp­færð

Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands, Skotvís, segir félagið hafa kallað eftir því að aldursviðmið í vopnalögunum er varðar börn verði uppfærð. Miða ætti við 18 ára í stað tuttugu og að rýmka ætti heimildir fyrir þátttöku barna í skotveiðum. Þórir Ingvarsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir vopnalögin alveg skýr. Börn megi ekki meðhöndla skotvopn.

Innlent

Mal­bika Vestur­lands­veg og stýra um­ferð á meðan

Í kvöld, sunnudaginn 23. ágúst, og aðfaranótt mánudagsins 24. ágúst stendur til að sinna malbiksviðgerðum á Vesturlandsvegi, meðal annars yfir Leirvogsá. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til 07:00. Einhverjar tafir geta orðið á umferð meðan á þeim stendur en henni verður stýrt í gegnum vinnusvæði.

Innlent

Tvö út­köll á svipuðum slóðum á há­lendinu með stuttu milli­bili

Þyrla Landhelgisgæslunnar var send að austanverðum Sólheimajökli í kjölfar útkalls vegna manns sem hafði slasast á fæti um tvöleytið í dag, sunnudaginn 23. ágúst. Hann var hífður upp og fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur en skömmu áður höfðu björgunarsveitir sótt annan slasaðan mann á svipuðum slóðum.

Innlent

Til­kynnt um heimilis­of­beldi í Reykja­vík og Hafnar­firði

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um heimilisofbeldi í hverfi 105 Reykjavík og hverfi 220 í Hafnarfirði í morgun eða í dag. Ekki liggur fyrir hvort það hafi áður verið kallað eftir aðstoð lögreglu á sömu heimili né hafa komið fram frekari upplýsingar um áverka og málsatvik.

Innlent

Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fundaði með Ásgeiri Jónssyni skömmu fyrir vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans í síðustu viku. Aðstoðarmaður Þorgerðar segir vaxtaákvörðunina ekki hafa verið rædda á fundi þeirra.

Innlent

Gagn­rýnir við­bragð lög­reglu eftir á­hlaup ung­menna

Forsvarsmenn veitinga- og skemmtistaðarins Priksins við Bankastræti í Reykjavík gagnrýna vinnubrögð lögreglu þegar staðnum var lokað í gær vegna áhlaups ungmenna. Viðbragð lögreglu hafi verið brot gegn meðalhófsreglu. Veitingastaðnum Gömlu Reykjavík við Austurvöll var einnig lokað.

Innlent

Ráð­herra byrjar með hlaðvarp

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er byrjaður með hlaðvarp. Hlaðvarpið heitir Sjónarhorn. Annar þingmaður flokksins er einnig með hlaðvarp og flokkurinn sjálfur rekur hlaðvarp þar sem iðulega er rætt við þingmenn flokksins.

Innlent

„Ætlar hann að segja já eða nei?“

„Nú er þetta aðeins að fara að verða eins og í frúinni í Hamborg: Ætlar hann að segja já eða nei?“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, í Sprengisandi á Bylgjunni í dag þar sem hann ræddi um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.

Innlent

Hiti á fundi borgar­ráðs vegna breytinga á matarþjónustu

Samhliða því að hætta við endurbætur á eldhúsi Reykjavíkurborgar á Vitatorgi og hækka gjaldskrá veitinga og fæðis hjá Reykjavíkurborg var ákveðið á fundi borgarráðs í vikunni að bjóða út dreifingu máltíðanna. Töluverður hiti var á fundinum en til umræðu voru nokkrar tillögur er varða framleiðslu, dreifingu og sölu á máltíðum fyrir lífeyrisþega og fatlað fólk í Reykjavík. 

Innlent

Báðar þyrlur og flug­vél gæslunnar á loft sam­tímis

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt fjórum sjúkraflugum það sem af er degi en þar af var eitt á Flateyri í Breiðafirði og eitt á Patreksfirði. Eftirlitsflugvélin TF-SIF hefur komið að útköllum þar sem farið var djúpt á haf út en á tímabili var nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum þar sem þau bárust nánast samtímis.

Innlent

Sakamálið sem skekur Banda­ríkin

Réttarhöld yfir bandarískri konu, sem játað hefur að hafa myrt börnin sín þrjú, hafa vakið gríðarlega athygli um allan heim. Mikill fjöldi fylgist með réttarhöldum í beinni útsendingu á degi hverjum og hefur málið hrundið af stað umræðu um fæðingarþunglyndi og fæðingarsturlun.

Innlent