Fréttir

Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu

Formaður Sjálfstæðisflokksins segist mjög sátt með þróun fylgis flokksins sem mældist með mesta fylgið í nýrri skoðanakönnun. Aukið fylgi stafi bæði af óvinsældum ríkisstjórnarinnar og samtakamætti Sjálfstæðisflokksins. Flokksmenn sem hurfu annað séu að snúa aftur.

Innlent

Tekið fram að svipting starfs­leyfis eigi ekki að vera refsing

Lagaprófessor segir að þegar lögum um Landlækni og lýðheilsu hafi verið breytt árið 2023 hafi sérstaklega verið fjallað um það að það að svipta lækna starfsleyfi sé ekki álitið refsing. Þess í stað væri markmiðið aðvörun eða endurhæfing. Breytingin hafi þó verið gerð eftir meint brot Skúla Tómas Gunnlaugssonar.

Innlent

Hútar réðust á olíu­flutninga­skip frá Sádi Arabíu

Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað.

Erlent

Um­ræðan hafi „aftur og aftur snúist um get­gátur, mis­skilning og út­úr­snúninga“

„Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um eitt: Viljum við að Ísland setjist við samningaborðið og freisti þess að ná eins hagfelldum samningi og völ er á, með þessi markmið að leiðarljósi? Verði svarið já opnum við á tækifæri. Með því að segja nei lokum við þessum dyrum. Í báðum tilvikum er það þjóðin sjálf sem ræður. Það er kjarni málsins, og hann breytist ekki þótt reynt sé að flækja hann.“

Innlent

Stúlkan fannst heil á húfi

Stúlka, sem björgunarsveitir og lögreglan á Norðurlandi eystra leitaði að á miðvikudagskvöld við Akureyri er komin í leitirnar.

Innlent

„Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“

Tjaldsvæði á Austurlandi eru mörg hver stappfull af sólarþyrstum Íslendingum í sumarfríi en veðrið á suðvesturhorninu hefur leikið íbúa höfuðborgarinnar grátt síðustu daga. Aðsóknin sé álag bæði á starfsfólk og innviði en vinna hafi verið lögð í uppbyggingu tjaldsvæða á Austfjörðum síðustu ár. 

Innlent

Bleikjuvinnslunni breytt í brugg­hús

Í byggingu sem áður hýsti vinnslustöð Klausturbleikju er núna verið að innrétta brugghús. Oddviti Skaftárhrepps segist treysta því að bjórinn verði jafngóður og bleikjan var.

Innlent

Banda­ríkin og Sádi-Arabía undir­rita kjarnorkusaming

Bandaríkin og Sádi-Arabía hafa undirritað samning sín á milli um rekstur bandarískra fyrirtækja á kjarnorkuverum í Sádi-Arabíu. Ekkert í samningnum hindrar úranauðgun Sáda til að framleiða kjarnorku, að sögn bandarískra fjölmiðla.

Erlent

„Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu

Ástralskur maður sem gekk til liðs við Íslamska ríkið árið 2015 vill snúa aftur heim. Maðurinn, sem heitir Tareq Kamleh en gekk undir nafninu „Doctor Jihad“ þar sem hann var barnalæknir, hefur lengi verið talinn hafa fallið. Hann stakk þó nýverið upp kollinum í íröksku fangelsi og vill hann komast aftur til Ástralíu.

Erlent

„Vald flug­stjórans er náttúru­lega al­veg klárt“

Flugmenn hafa skyldu til þess að grípa inn í ef öryggi er í hættu en ákvörðunarvaldið er í höndum flugstjóra að sögn ábyrgðarmanns þjálfunar hjá Icelandair. Vald flugstjóra innan flugklefans sækir fyrirmynd úr siglingalögum en hefur tekið þó nokkrum breytingum á síðustu áratugum.

Innlent

Segir málið verða að hafa af­leiðingar fyrir Skúla Tómas

Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að niðurstöðunni verði snúið við í Landsrétti og segir það verða að hafa afleiðingar að bana fólki. Við ræðum við hana og Hafstein Dan Kristjánsson lagaprófessor um málið í fréttum okkar á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis.

Innlent

Segir Dag plata með úr­eltri skýrslu

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, fer hörðum orðum um skrif Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, í pistli undir yfirskriftinni „Dagur, bannað að plata!“ Dagur fjallaði fyrr í dag um tólf ára gamla skýrslu þar sem segir að upptaka evru myndi fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland. Ásdís bendir á að skýrslan hafi verið rituð í efnahagsumhverfi sem sé fyrir löngu liðið undir lok.

Innlent

Rústa brú eða orku­veri fyrir hverja á­rás á Hormússundi

Donald Trump segir að í hvert sinn sem Íranir ráðist á skip á Hormússundi, hvort sem það er með dróna, eldflaug eða öðrum hætti, muni Bandaríkin svara með eigin árásum. Þær verði gerðar á brýr eða orkuver. Einni brú eða orkuveri verði rústað fyrir hverja árás Írana.

Erlent

Vara við hættu­legum að­stæðum við Sólheimajökul

Undanfarnar vikur hafa orðið verulegar breytingar við sporð Sólheimajökuls sem hafa gert aðkomu að jöklinum erfiðari og varasamari. Óstöðugur jökulís við jökullónin og grjóthrun úr hlíðum geta skapað hættu fyrir fólk sem fer um svæðið.

Innlent

Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn

Franskur maður sem kynnti Jeffrey Epstein fyrir fyrirsætum í gegnum árin fannst látinn á heimili sínu í gær. Daniel Siad var 69 ára gamall en ekki liggur fyrir enn hvernig hann dó.

Erlent

Vill að Infantino stýri Sam­einuðu þjóðunum

Donald Trump vill að Gianni Infantino, forseti FIFA, verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Forsetarnir tveir eru góðir vinir og er Trump sagður sannfærður um að Infantino njóti mikillar virðingar um heiminn allan. Trump mun þar að auki telja að Infantino hafi sérstakan hæfileika í því að skapa samstöðu.

Erlent