Fréttir

Ís­lendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínu­menn

Forsætisráðherra Íslands segir að þó stuðningur Íslands við Úkraínu nemi ekki háum upphæðum í stóru myndinni séu þær hlutfallslega háar og Íslendingar geti verið stoltir af stuðningi sínum við baráttu Úkraínumanna fyrir eigin fullveldi. Ráðherrann var í dag viðstödd minningarathafnir íKænugarði í tilefni af því að fjögur ár eru frá því að Rússar réðust inn í landið.

Erlent

„Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði inn­flytj­enda þarfnist þekkingar

Afbrotafræðingur nefnir tvær ástæður fyrir því að Íslendingar vilji í ítrekuðum mæli fækka innflytjendum hérlendis, annars vegar popúlisma og hins vegar ákall landsmanna eftir breytingum vegna fjöldans. Leiðrétt tölfræði um brotamenn með erlent ríkisfang séu áhugaverð en túlkun gagnanna krefjist þekkingar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist ekki ætla að láta þagga niður í sér með dylgjum um menntunarstig.

Innlent

Reyna að hnýta lausa enda sem allra fyrst

Eiríkur Valberg, fulltrúi í rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögregluna vera langt komna með að hnýta lausa enda í rannsókn á Edition-málinu svokallaða. Héraðssaksóknari sendi málið aftur til lögreglu fyrir um hálfum mánuði.

Innlent

Krafa að fá slökkvi­stöð í bæinn

Mikilvægt er að næsta slökkvistöð á höfuðborgarsvæðinu rísi í efri byggðum Kópavogs að mati bæjarstjórans til að stytta viðbragðstíma slökkviliðsins á svæðinu. Ef áform ganga eftir verður hún að veruleika árið 2030.

Innlent

Gular veðurviðvaranir á Austur­landi

Gular veðurviðvaranir taka gildi á Austurlandi síðdegis í dag. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem gætu staðbundið farið yfir þrjátíu metra á sekúndu.

Veður

Lausir endar í Edition-málinu

Héraðssaksóknari hefur sent Edition-málið svokallaða aftur til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem taldi rannsókn sinni á málinu lokið. Saksóknari segir að skoða þurfi nokkra anga málsins betur.

Innlent

„Við erum að vinna með fólki sem hefur lent í miklum á­föllum“

Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands, segir niðurstöður nýrrar könnunar um ofbeldi gegn félagsráðgjöfum í starfi gefa tilefni til að kanna hvað sé hægt að gera til að tryggja góða eftirfylgni á vinnustöðum og að félagsráðgjafar fái þann stuðning sem þeir þurfa til að sinna vinnu sinni vel. 

Innlent

Sam­bandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning

Fyrrverandi utanríkisráðherra segir samband Íslands við Evrópu ekki þurfa að vera já eða nei spurningu og hægt sé að auka samstarfið án þess að ganga í Evrópusambandið. Hann óttast að umræðan festist í hjólförum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður.

Innlent

Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni

Sænsk-bandarísk kaupsýslukona sendi Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninum, myndir af ungum og efnilegum konum sem hún var með í læri. Epstein valdi sér svo konur sem hann vildi hitta.

Erlent

Á­hrif stóraukins geimrusls á loft­hjúpinn ó­þekkt

Leifar af eldflaugum og gervihnöttum sem brenna upp í lofthjúpnum gætu raskað ósónlaginu og jafnvel hversu mikil sólgeislun berst til yfirborðs jarðar. Vísindamenn sem rannsökuðu endurkomu eldflaugar SpaceX hafa áhyggjur af því að þekkingu skorti á áhrifum geimrusls.

Erlent

Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina

Starfsmenn hamborgarastaðarins 2guys við Hlemm í miðborg Reykjavíkur segjast varla geta affermt vörur án þess að eiga það á hættu að fá stöðumælasekt. Hafa þeir í sex skipti verið sektaðir um tíu þúsund krónur. Eigandi segist vera orðinn langþreyttur á skilnings- og áhugaleysi sem hann segir mæta sér hjá Reykjavíkurborg. Borgin segir reglurnar sambærilegar og í miðborgum í nágrannalöndunum.

Innlent