Sprenging í Fóðurblöndunni

Fréttamynd

Lést í sprengingunni

Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík í morgun. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild og annar þeirra er alvarlega slasaður. Talið er að um ryksprengingu í tómum tanki hafi verið að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóður­blöndunni

Sprengingin í Fóðurblöndunni í morgun varð í tómum tanki í húsnæði Fóðurblöndunnar. Í yfirlýsingu kemur fram að vinna hafi verið yfirstandandi við einn af þremur tómum tönkum. Í húsinu séu alls 45 tankar. Framkvæmdastjóri telur að um ryksprengingu hafi verið að ræða.

Innlent
Fréttamynd

„Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægi­legt“

Einn liggur þungt haldinn á spítala eftir að sprenging varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í Korngörðum upp úr klukkan sjö í morgun. Sjónarvottur segir að sér sé illa brugðið eftir atvikið. Ringulreiðin og öskrin sem fylgdu hafi verið verulega óþægileg. 

Innlent
Fréttamynd

Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu

Sá hluti húsnæðis Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík sem stórt gat myndaðist á í sprengingu í morgun er hannaður til þess að gefa eftir í sprengingu. Tveir þeirra sem slösuðust voru í þeim hluta byggingarinnar. Annar þeirra er alvarlega slasaður. Sá þriðji var fyrir utan húsið þegar viðbragðsaðila bar að garði og gekk sjálfur inn í sjúkrabíl.

Innlent