Verkalýðsdagurinn

Fréttamynd

Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni

Einn allra frægasti köttur landsins, Diego, gerði sér ferð í Skeifuna í dag, líkt og hann gerir langflesta daga. Í dag, sem og aðra rauða daga, er opnunartími sumra verslana hins vegar breyttur og virðist höfðinginn ekki alveg nógu sáttur með tiltækið. Hann virtist á mynd sem birt var á Facebook í dag hvorki skilja upp né niður í því að rennihurðirnar á verslun A4 hreyfðust ekki fet.

Innlent
Fréttamynd

Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn há­tíð­legur

Verkalýðsdagurinn er venju samkvæmt haldinn hátíðlegur víða um land í dag, 1. maí. Það var meðal annars haldinn baráttufundur verkalýðsfélaga á Ingólfstorgi, kröfuganga niður Skólavörðustíginn og verkalýðskaffi í Iðnó. Á Selfossi var dagskráin engu síðri. 

Innlent
Fréttamynd

Þetta sé bæjar­stjórn Kópa­vogs til skammar

Kristrún Frostadóttir flutti ræðu á verkalýðskaffi sem Samfylkingarfélagið bauð til í Iðnó í dag. Þar sagði hún að bæjarstjórn Kópavogs væri til skammar fyrir að „hafa ekki úthlutað einni einustu lóð til Bjargs, sem byggir fyrir tekjulægra vinnandi fólk og tryggir fjölskyldum þess öruggt húsnæði“. Hún nefnir þá einnig undrun sína á mótspyrnu pólitískra andstæðinga í tenglsum við lögfestingu réttar til leikskólavistar.

Innlent
Fréttamynd

Bar­átta sem skiptir sköpum

Það er auðvelt að taka þeim réttindum sem við eigum sem sjálfsögðum hlut, svo sem að vinna á mannsæmandi launum, að eiga rétt á fríi og að geta treyst á veikindarétt, fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur eða stuðning þegar lífið fer úr skorðum.

Skoðun
Fréttamynd

Styrkur okkar er vel­ferð allra

Á 1. maí, baráttudegi launafólks, fögnum við því að íslenskt samfélag stendur á sterkum grunni. Sá grunnur er ekki tilviljun. Hann byggir á baráttu kynslóðanna; á dugnaði, fórnfýsi og hugsjónum þeirra sem á undan okkur fóru.

Skoðun
Fréttamynd

Hug­leiðing á 1. maí.

Í sjónvarpsþáttaseríunni Næturvaktin, sem sýnd var í sjónvarpi fyrir nokkrum árum, ber það við einn dag að félagarnir Ólafur Ragnar og Daníel standa einir vaktina. Stöðvarstjórinn, Georg Bjarnfreðarson, er í fríi og tekur þá þátt í kröfugöngunni 1. maí.

Skoðun
Fréttamynd

Virðum vinnu lista­fólks

Á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins, 1. maí, er lögð áhersla á grundvallarrétt fólks til sanngjarnra kjara og virðingar fyrir störfum sínum. Nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga lagði Bandalag íslenskra listamanna fyrir stjórnmálaflokka um allt land spurningarlista. Ein af lykilspurningunum laut að kjörum listafólks og var svohljóðandi:

Skoðun
Fréttamynd

Bjart og fal­legt verkalýðsdagsveður

Veðursfræðingur spáir strekkings norðanátt í dag með dálitlum éljum. Svalt verður í veðri, 0 til 10 stig, en sunnan- og vestanlands verður nokkuð bjart og fallegt veður. Það lægir smám saman og í kvöld verður vindur hægur víðast hvar og bjart veður og jafnframt frystir í öllum landshlutum. 

Veður
Fréttamynd

Frí­dagar í klemmu

Óvenju marga frídaga ber upp á fimmtudegi í ár. Strax eftir páska komu sumardagurinn fyrsti (fimmtudaginn 24. apríl) og frídagur verkalýðsins (fimmtudaginn 1. maí). Framundan eru síðan uppstigningardagur (fimmtudaginn 29. maí) og þjóðhátíðardagurinn (fimmtudaginn 17. júní). Árið 2025 er því sannarlega ár klemmudaganna.

Skoðun
Fréttamynd

Elsku ASÍ, bara… Nei

Í ávarpi sínu fyrir 1. maí 2025, þá nefndi forseti ASÍ ýmis verkefni sem verkalýðshreyfingin þarf að fara að ganga betur í. Eitt af þessum verkefnum var að tækla aukningu á verktakavinnu, og nefndi þar sérstaklega „Gigg-hagkerfið [sem] er atlaga auðhyggjunar að siðuðu samfélagi“ sem lýst var sem „mannfjandsamlegri hugmyndafræði“.

Skoðun
Fréttamynd

Myndaveisla: Lúðra­sveit, fánar og gríðar­stór stytta á Verkalýðsdaginn

Margt var um manninn í miðborg Reykjavíkur í tilefni Verkalýðsdagsins. Fólkið safnaðist saman á Skólavörðustíg og gengu þau saman niður á Ingólfstorg. Þar var útifundur þar sem Karla Esperanza Barralaga Ocón starfskona í umönnun, trúnaðarmaður og stjórnarmaður í Eflingu og Jóhanna Bárðardóttir rafveituvirki, rafvirki og trúnaðarmaður RSÍ, tóku til máls. Viktor Freyr Arnarsson ljósmyndari fangaði stemninguna.

Innlent
Fréttamynd

Þekkir of­beldið sem konur í karllægum störfum verða fyrir

„Ég var tæplega þrítug þegar ég ákvað að láta ekki staðalímyndir, fordóma og mótlæti hafa áhrif á það hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór. Ég skráði mig í nám á rafvirkjabraut í FB og í dag get ég sagt með stolti að ég er ein af ríflega hundrað konum sem hafa lokið sveinsprófi í rafvirkjun á Íslandi,“ segir Jóhanna Bárðardóttir, formaður Félags fagkvenna. Hún var meðal þeirra sem hélt ræðu á Verkalýðsdaginn í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Vilja móta sam­fé­lagið í þágu vinnandi fólks

Forsætisráðherra lagði áherslu á samvinnu stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar í ávarpi sínu á Verkalýðsdaginn. Flokkar líkt og Samfylkingin þurfi áframhaldandi stuðning til að starfa í þágu vinnandi fólks.

Innlent
Fréttamynd

Verkalýðsdagurinn haldinn í skugga sjálftöku for­ystu­manna

Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir verkalýðsdaginn vera haldinn í skugga sjálfstöku verkalýðsforingja þetta árið. Hann gagnrýnir margmilljóna króna starfslokagreiðslur til verkalýðsleiðtoga sem snéru sér að öðrum starfsvettvangi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er mikill merkis­dagur fyrir okkur“

Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er í dag. Af því tilefni verða kröfugöngur og dagskrá um land allt. Verkalýðsleiðtogi segir enn ýmislegt til að berjast fyrir og að dagurinn sé gríðarlega mikilvægur. 

Innlent
Fréttamynd

Rauðir sokkar á 1. maí

Þegar þetta er skrifað að morgni 1. maí, eru 55 ár síðan ég gekk niður Laugaveg, fram hjá meðal annars stórri styttu af konu og hópi kvenna sem flestar voru á rauðum sokkum.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað ætlar þú að vera þegar þú verður stór?

Sonur minn sem er 7 ára var lengi vel harðákveðinn í því að hann ætlaði að verða þrifmaður á sjúkrahúsi þegar hann yrði stór. Þessu svaraði hann til í marga mánuði í hvert sinn sem einhver spurði hann þeirri algengu spurningu: Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?

Skoðun
Fréttamynd

Sköpum störf við hæfi!

Skilgreining fötlunar er breytileg og því er erfitt að segja til um hversu margir einstaklingar í heiminum teljast fatlaðir. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) telur að um 13-20% íbúa í hinum vestræna heimi búi við fötlun eða nokkur hundruð milljónir einstaklinga. Með hækkandi aldri, sjúkdóma og árekstra fer sú tala hækkandi.

Skoðun
Fréttamynd

Hittumst á rauðum sokkum 1. maí

Á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí á hverju ári söfnumst við saman, fögnum áfangasigrum verkalýðshreyfingarinnar og leggjum fram kröfur okkar til að móta framtíðarsýn um það samfélag sem við viljum byggja fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir. Í tilefni af Kvennaári 2025 munu konur taka yfir sviðið í baráttudagskrá stéttarfélaga um land allt.

Skoðun