Rússland
64 65 66 67 68 69 70 71 72 … 104 ›
Vaktin: Telur ýmislegt benda til þess að Rússar séu á eftir áætlun Vísir heldur áfram að fylgjast með þróun mála í Úkraínu, þar sem rússneski herinn hefur markvisst beint sjónum sínum að mikilvægum innviðum síðasta sólahringinn. Margir Úkraínumenn eru nú án vatns, rafmagns og hita og fjöldi heimila hefur verið eyðilagður. Erlent 3.3.2022 05:49
Segja ráðamenn í Kína hafa sagt Rússum að bíða með innrásina þar til eftir Ólympíuleikana Ráðamenn í Kína vissu af fyrirætlunum Rússa um að ráðast inn í Úkraínu ef marka má gögn sem yfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu hafa undir höndum. Komu þeir þeim skilaboðum á framfæri við Rússa að láta ekki til skarar skríða fyrr en að Ólympíuleikunum, sem haldnir voru í Pekíng, væri lokið. Erlent 3.3.2022 05:00
Rússar hafa náð Kherson á sitt vald Rússar hafa náð borginni Kherson á sitt vald. Þetta hefur New York Times eftir heimildarmönnum í Úkraínu. Borgarstjóri borgarinnar og bandarísk yfirvöld höfðu áður sagt að óvíst væri um stöðu mála þar sem bardagar stæðu enn yfir. Erlent 3.3.2022 04:34
Syngja fyrir Úkraínu Íslenskir söngvarar, og aðrir sem vilja taka þátt, hyggjast hópast saman fyrir framan sendiráð Rússlands á Íslandi og sendiherrabústaðinn í Reykjavík og syngja til stuðnings Úkraínu klukkan níu í fyrramálið. Innlent 2.3.2022 21:39
Þakklát fyrir tillögu um Kænugarðsstræti Kona af úkraínskum ættum sem býr í Garðastræti í Reykjavík er snortin yfir þeirri hugmynd oddvita Sjálfstæðisflokksins að breyta nafni götunnar í Kænugarðsstræti. Það fæli í sér mikilvæga stuðningsyfirlýsingu við þjóð hennar. Innlent 2.3.2022 20:01
Biden segir Pútín hafa hitt ofjarl sinni í úkraínsku þjóðinni Rússar hafa hert mjög loftárásir sínar á borgir víðs vegar um Úkraínu í dag og fullyrða að þeir hafi náð einni þeirra alfarið á sitt vald. Forseti Bandaríkjanna segir Rússa eiga eftir að finna fyrir afleiðingum innrásarinnar á stöðu sína um langa framtíð. Talið er að um tvö þúsund óbreyttir borgarar hafi fallið frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 2.3.2022 19:21
Allsherjarþingið fordæmir innrásina og krefst þess að herlið verði dregið til baka Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þar sem innrás Rússa í Úkraínu er fordæmd og þess krafist að rússneskir hermenn verði dregnir til baka. Erlent 2.3.2022 17:55
Versti dagur stríðsins hingað til Harðir bardagar hafa staðið yfir í allan dag í Kharkív, Mariupol og Kherson. Eldflaugum hefur rignt yfir borgirnar og stórskotalið herjað á þær. Rússar hafa bætt verulega í árásir á skotmörk í borgum sem ekki þjóna hernaðarlegum tilgangi. Erlent 2.3.2022 16:31
Ál- og gasverð í hæstu hæðum Miklar hækkanir hafa orðið á eldsneytismörkuðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu og refsiaðgerða gegn Rússlandi. Tunnan af hráolíu kostar nú meira en 110 Bandaríkjadali og hefur verð jarðgass hefur aldrei verið hærra í Evrópu. Viðskipti erlent 2.3.2022 15:56
Maltverjar loka á vegabréfakaup Rússa Malta hefur ákveðið að loka fyrir umsóknir Rússa og Hvítrússa fyrir svokölluð „gyllt vegabréf“ vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gegn ríkjunum tveimur. Erlent 2.3.2022 15:14
Erlendum ríkisborgurum meinað að flýja Úkraínu Erlendir ríkisborgarar, sérstaklega af afrískum uppruna, hafa lent í miklum vandræðum við að flýja Úkraínu. Margir þeirra segja að þeim hafi verið vísað úr lestum og þeim meinaður aðgangur að almenningssamgöngum á leið úr landinu. Erlent 2.3.2022 14:09
Veruleiki Úkraínumanna á sjöunda degi stríðs Fátt grípur veruleikann betur en ljósmyndir enda segja þær meira en þúsund orð. Það getur reynst okkur á Íslandi erfitt að gera okkur grein fyrir veruleika Úkraínumanna þessa dagana. Erlent 2.3.2022 13:24
Rússar segja aðra umferð friðarviðræðna fara fram í dag Önnur umferð friðarviðræðna milli Úkraínu og Rússlands fer fram síðar í dag. Þetta kemur fram í frétt rússneska ríkisútvarpsins Tass og þar vísað í starfsmann úkraínska forsetaembættisins. Erlent 2.3.2022 11:59
Grunnskólabörn handtekin í Moskvu fyrir að leggja blóm við úkraínska sendiráðið Að minnsta kosti fjögur grunnskólabörn og foreldrar þeirra voru handtekin í Moskvu í gær þegar þau lögðu blóm við úkraínska sendiráðið og héldu á skiltum sem á stóð „Nei við stríði“. Erlent 2.3.2022 11:37
Bein útsending: Innrásin og afleiðingarnar fyrir öryggi í Evrópu Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag stjórnmálafræðinga standa fyrir opnum fundi um innrás Rússlands í Úkraínu og þær afleiðingar sem innrásin hefur fyrir öryggi í Evrópu. Innlent 2.3.2022 11:31
Navalní kallar eftir mótmælum: „Pútín er ekki Rússland“ Rússneski andófsmaðurinn Alexei Navalní kallar eftir því að Rússar haldi umfangsmikil mótmæli gegn innrásinni í Úkraínu. Þetta segir Navalní í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér þar sem hann situr í fangelsi í Rússlandi. Erlent 2.3.2022 11:02
Pútín sagður einangraður og með ofsóknaræði Starfsmenn leyniþjónusta í Bandaríkjunum og Evrópu vinna hörðum höndum þessa dagana að því að átta sig á hugarástandi Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Erlent 2.3.2022 09:52
Vill breyta Garðastræti í Kænugarðsstræti Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun í dag leggja fram tillögu í skipulagsráði borgarinnar þess efnis að nafnanefnd verði falið að breyta heiti Garðastrætis í Kænugarðsstræti. Innlent 2.3.2022 08:39
Íslendingur í Kænugarði segir ýmis vandamál virðast plaga Rússa Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem búsettur er í Kænugarði, segir síðasta sólahring hafa verið nokkuð rólegan í borginni, fyrir utan tvær stórar sprengingar í gær þar sem ráðist var á sjónvarpsturn annars vegar og minnisvarða um Helförina hins vegar. Erlent 2.3.2022 07:45
Vaktin: Ísland á meðal ríkja sem vísa meintum stríðsglæpum Rússa til rannsóknar Alþjóðasakamáladómstólsins Vika er liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan. Erlent 2.3.2022 06:49
Hart barist í Karkív eftir að rússneskar hersveitir lenda í borginni Rússneskar hersveitir lentu í Karkív um klukkan 3 í nótt og harðir bardagar standa nú yfir milli þeirra og úkraínska hersins. Úkraínsk yfirvöld greindu frá því í nótt að ráðist hefði verið á hersjúkrahús í borginni og að bardagar hefðu brotist út á milli „innrásarhermanna og úkraínskra varnaraðila“. Erlent 2.3.2022 06:22
Tárvot þrumuræða úkraínskrar blaðakonu vekur heimsathygli Daria Kaleniuk, úkraínskur blaðamaður, grátbað Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um aukna aðstoð til að berjast gegn innrás Rússa í Úkraínu á blaðamannafundi í dag. Myndband af þrumuræðu hennar hefur vakið heimsathygli. Erlent 1.3.2022 21:37
Segir það ósanngjarnt að banna rússnesku íþróttafólki að keppa Rússneski ökuþórinn Daniil Kvyat segir það ósanngjarna lausn að banna rússnesku íþróttafólki að keppa í sinni íþrótt vegna innrásar þjóðarinnar í Úkraínu. Formúla 1 1.3.2022 20:46
Sendiherrann segir að barist verði til síðasta blóðdropa um Kænugarð Olga Dibrova hefur verið sendiherra Úkraínu á Íslandi með aðsetur í Helsinki í tvö ár en vegna Covid faraldursins gat hún fyrst í dag afhent forseta Íslands trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Hún segir Rússa aldrei ná höfuðborginni Kænugarði á sitt vald vegna þess að þeir berjist ekki einungis við úkraínska herinn heldur alla úkraínsku þjóðina Innlent 1.3.2022 18:33
Klitschko boxbræður sagðir vera á aftökulista Pútíns Valdimír Pútín sendir ekki aðeins hersveitir inn í Úkraínu því hann virðist líka vera búinn að gera út aftökusveit sem á að einbeita sér að losa hann við þá Úkraínumenn sem hann er sérstaklega ósáttur. Sport 1.3.2022 17:01
„Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni“ „Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni,“ sagði dóttir Juliu Petryk, íbúa í Kænugarði, þegar mæðgurnar tóku tvo ókunnuga stúdenta inn á heimili sitt um helgina. Stúdentarnir voru þeim alls ókunnugir áður en Rússar réðust inn í Úkraínu en eru nú eins og hluti af fjölskyldunni þeirra. Erlent 1.3.2022 14:32
Ekki tímabært að slíta stjórnmálasambandi við Rússa Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það ekki á dagskrá að svo stöddu að slíta stjórnmálasambandi við Rússa vegna innrásarinnar í Úkraínu þar sem slíkt væri síðasta úrræði. Hún telur að þær refsiaðgerðir sem kynntar hafi verið komi til með að setja þrýsting á rússnesk stjórnvöld og segir alþjóðasamfélagið samstíga í sinni afstöðu. Innlent 1.3.2022 13:47
Diplómatar Sameinuðu þjóðanna snúa baki við Lavrov Diplómatar hjá Sameinuðu þjóðunum hafa margir neitað að hlusta á málflutning Sergei Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, í dag. Erlent 1.3.2022 13:36
Rússar áhyggjufullir um samskipti Norðmanna og Dana vegna breytinga á götuheiti Rússneska sendiráðið í Danmörku hefur lýst yfir áhyggjum af samskiptum Norðmanna og Dana vegna umræðna um að breyta heiti götunnar Kristianiagade í Ukrainegade. Rússneska sendiráðið stendur við fyrrnefnda götu og einn borgarstjóra Kaupmannahafnar hefur lýst yfir vilja til að skoða það að breyta götuheitinu í Ukrainegade. Erlent 1.3.2022 12:30
Selenskí segir árásina á ráðhúsið í Karkív vera hryðjuverk Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugaárásin á ráðhúsið í Karkív í morgun sé hryðjuverk. Í nýju ávarpi segir forsetinn að Rússar ætli sér að nota slík ódæði til að draga úr baráttuanda Úkraínumanna. Erlent 1.3.2022 11:57