Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Að minnsta kosti fimm létu lífið í snjóflóðum sem féllu víða um austurríska sambandslandið Tíról í dag og í gær. Þung snjókoma og sterkir vindar hafa riðið yfir landshlutann undanfarna daga. 21.2.2026 22:26
Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Japanski makakíapinn Punch, sem býr í dýragarði utan Tókýó, er einn frægasti api heims um þessar mundir. Myndskeið af honum og órangútantuskudýri úr Ikea, óvæntu tvíeyki, dreifast sem eldur í sinu um netmiðla. 21.2.2026 21:07
„Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Unglingspiltur kom í veg fyrir stórtjón þegar eldur kviknaði í rafmagnstöflu á heimili hans í Selási gær. Móðir hans segir atvikið hafa vakið hana til umhugsunar um hve gríðarmikilvægar eldvarnir á heimilum eru. 21.2.2026 20:09
Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Björgunarsveitir hafa síðdegis og í kvöld aðstoðað vegfarendur sem lent hafa í vandræðum á hringveginum undir Eyjafjöllum. Veginum var á tímabili lokað vegna þess að bílar sátu fastir. 21.2.2026 18:39
Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. hefur verið slitið. Þetta kemur fram í Kauphallartilkynningu frá Skaga sem send var út síðdegis. 21.2.2026 17:09
Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Breska ríkisstjórnin íhugar að leggja fram frumvarp sem felur í sér að Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, verði sviptur erfðarétti sínum að bresku krúnunni þegar yfirstandandi lögreglurannsókn á máli hans er lokið. 20.2.2026 23:56
Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Formenn stéttarfélaganna BHM og BSRB gagnrýna harðlega úttekt Viðskiptaráðs á veikindarétti opinberra starfsmanna. Þær segja skýrsluna unna út frá misvísandi gögnum og að tillaga ráðsins um að færa veikindarétt opinberra starfsmanna til jafns við einkageirann sé ómanneskjuleg. 20.2.2026 22:25
„Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Tveir frambjóðendur vilja oddvitasætið í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Sitjandi oddviti segir vinstrið þurfa á reynslu að halda en mótframbjóðandinn boðar meiri róttækni í húsnæðis- og samgöngumálum. 20.2.2026 20:26
Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Donald Trump Bandaríkjaforseti kom fram á blaðamannafundi í kvöld eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem hann hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið. 20.2.2026 18:17
„Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Stemningunni á skíðasvæðinu í Bláfjöllum í dag var lýst sem geggjuðum Austurríkisfíling eftir að eins og hálfs tíma töf varð vegna bilunar á stólalyftunni. Veðurfræðingur spáir allhvössu veðri á morgun en rekstrarstjóri Bláfjalla gefur lítið fyrir veðurspár og býst við dúndurstemningu í fjallinu um helgina. 20.2.2026 17:54