Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun

Í fréttatilkynningu frá flugfélaginu Niceair kemur fram að starfsemi á Íslandi hefjist í fyrsta lagi vorið 2027. Sagt er að flug þess á meginlandinu hefjist nú í nóvember en ekki er upplýst milli hvaða staða verður flogið.

Borgarísjaka rekur í átt að Skaga­firði

„Það er ísjaki sem lónar fyrir utan Straumnesvita. Þetta er heljarinnar fleki,“ staðfestir Sjöfn Guðmundsdóttir sem búsett er í Fljótum, um miðja vegu milli Hofsóss og Siglufjarðar. „En hann er alveg úti við sjóndeildarhring enn þá.“

Bíl­stjóri horfði á skelfingu lostinn

Jonathan Angulo Cifuentes ökuleiðsögumaður fylgdist með skelfingu lostinn þegar Suzuki Jimny-jepplingur keyrði út af veginum og steyptist niður hlíðar Bolafjalls í gær. Hann segir ökumanninn hafa, á miklum hraða, tekið fram úr þremur rútum áður en hann missti stjórn á bílnum með þessum afleiðingum.

Mosfellsdalur minnti á víg­völl

„Þetta líktist næstum því vígvelli,“ sagði Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður sem fylgt hefur eftir atburðum í Mosfellsdal í dag, en þar hefur mátt heyra skothvelli á meðan drónar sveima yfir. Fréttir bárust af því í morgun að þúsundum minka hefði verið sleppt úr búrum sínum á Dalbúi, síðasta minkabúi landsins, og er unnið hörðum höndum að því að ná stjórn á minkafaraldrinum.

Kíkti í kaffi til kanslarans

„Ég átti þar leið hjá og nýtti tækifærið,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands í færslu, en hún hitti Friedrich Merz kanslara Þýskalands í vikunni.

Gæslu­varð­hald sam­þykkt yfir Ming Ting

„Það var fallist á gæsluvarðhaldskröfu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærkvöldi,“ staðfestir Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming Ting Mancel, sakbornings í Edition-málinu svokallaða. Mancel var í gær dæmd til tólf ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir samverknað í morði á dóttur sinni.

Bæta við sex nýjum Airbus-vélum

Icelandair hefur undirritað leigusamninga fyrir sex Airbus A320neo flugvélar og heldur þannig áfram færslu sinni frá Boeing-flugvélum yfir í Airbus. Vélarnar verða komnar í þjónustu félagsins fyrir sumarið 2028 og verða Airbus-vélar félagsins þá orðnar tuttugu alls. 

„Það er búið að slökkva og húsið er ó­nýtt“

Slökkvistarfi er lokið í Stykkishólmi staðfestir Einar Strand, slökkviliðsstjóri á staðnum, í samtali við fréttastofu. „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt,“ segir Einar, aðspurður hver staðan sé.

Sjá meira