Fréttamaður

Samúel Karl Ólason

Samúel Karl er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Tunglskotinu frestað til mars vegna leka

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að fresta því að senda geimfara til tunglsins þangað til í mars. Til stóð að skjóta fjórum geimförum af stað til tunglsins um næstu helgi en eldsneytislekar fundust í gær á Space Launch System (SLS) eldflauginni sem á að koma geimförunum í leiðangrinum Artemis 2 af stað.

Fórnar­lömb vilja láta loka á Epstein-skjölin

Lögmenn nærri því hundrað fórnarlamba Jeffreys Epstein munu á morgun reyna að sannfæra alríkisdómara um að skipa ríkisstjórn Bandaríkjanna að loka netsvæði þar sem Epstein-skjölin svokölluðu eru aðgengileg. Fórnarlömbin segja að nöfn þeirra hafi verið opinberuð í skjölunum og að það hafi snúið lífi þeirra á hvolf.

Sam­einaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu

Elon Musk, auðugasti maður heims, tilkynnti í gær að tvö fyrirtæki hans hefðu verið sameinuð í eitt. Geimferða- og gervihnattafyrirtækið SpaceX hefur nú eignast gervigreindar- og samfélagsmiðlafyrirtækið xAI og varð úr sameiningunni verðmætasta einkafyrirtæki heimsins.

Varpa loksins ljósi á um­deilt sam­komu­lag Epsteins frá 2008

Alríkissaksóknari sem lagði til árið 2007 að Jeffrey Epstein yrði ákærður í 32 liðum, sagði meðal annars að Epstein hefði hótað einu fórnarlamba sinna, sextán ára stúlku, og sagt að „slæmir hlutir“ gætu komið fyrir hana, ef hún talaði við yfirvöld. Hann var þá sakaður um að hafa brotið á fjölda stúlkna og ungra kvenna yfir sex ára tímabil.

Birtu nektar­myndir af ungum konum fyrir mis­tök

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti fyrir mistök fjölda nektarmynda af ungum konum og mögulega táningum. Myndirnar voru úr einkasafni Jeffreys Epstein og hluti af Epstein-skjölunum svokölluðu. Lögin sem skikkuðu ráðuneytið til að birta skjölin fólu í sér að hylma átti yfir nekt á myndum Epsteins og andlit meintra fórnarlamba hans eða aðrar upplýsingar sem hægt væri að nota til að bera kennsl á þau.

Kári Stefáns­son for­dæmir vinnu­brögð Moggans

Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir þá fugla versta sem skíta í eigin hreiður. Hann er afar ósáttur við að því sé slegið upp að nafn hans hafi verið að finna í Epstein-skjölunum.

„Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur

Nokkrum dögum áður en Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna á nýjan leik í janúar í fyrra, keyptu sjeik úr konungsfjölskyldu Sameinuðu arabísku furstadæmanna og aðrir fjárfestar þaðan 49 prósenta hlut í rafmyntafélagi fjölskyldu forsetans.

Ó­væntur stór­sigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum

Taylor Rehmet, frambjóðandi Demókrataflokksins til öldungadeildarsætis í ríkisþingi Texas, verkalýðsleiðtogi og uppgjafarhermaður, vann mjög svo óvæntan sigur í kosningum á laugardaginn. Úrslitin þykja líkleg til að valda áhyggjum meðal leiðtoga Repúblikanaflokksins fyrir þingkosningarnar í nóvember.

Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli

Tulsi Gabbard, yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, leiðir umfangsmikla leit ríkisstjórnar Donalds Trump að vísbendingum um umfangsmikið kosningasvindl sem forsetinn segir að hafi kostað sig sigur í forsetakosningunum 2020. Trump hefur ítrekað haldið því fram að sú hafi verið raunin en hvorki hann né bandamenn hans hafa getað fært almennileg rök fyrir því.

Harma launalækkanir í fisk­eldi á Vest­fjörðum

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga segist harma að stjórnendur Arnarlax og Arctic fish hafi tekið þá ákvörðun að lækka laun starfsfólks í fiskeldi. Sú ákvörðun mun hafa verið tilkynnt starfsfólki fyrr í mánuðinum og á að taka gildi þann 1. maí.

Sjá meira