Fréttamaður

Samúel Karl Ólason

Samúel Karl er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Pútín lentur í Peking

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti í dag í Peking í Kína, þar sem hann mun funda með Xi Jinping, kollega sínum. Fundarhöldin munu standa yfir í tvo daga og ætla forsetarnir, samkvæmt rússneskum stjórnvöldum, að ræða efnahagssamvinnu og sameiginlega hagsmuni ríkjanna. Stutt er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti var í opinberri heimsókn í Kína en talsmaður Pútíns segir það ótengt heimsókn Pútíns.

Ó­sáttir við kröfur Trumps: „Græn­lendingar eru ekki til sölu“

Jens-Frederik Nielsen, formaður landstjórnar Grænlands, segir Grænlendinga ekki til sölu og að ekki sé hægt að semja um sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Þetta sagðist Nielsen hafa ítrekað fyrir sérstökum erindreka Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi sem lenti þar í gær.

Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego

Tveir táningar hófu skothríð á fólk við mosku í San Diego í Bandaríkjunum nú undir kvöld. Báðir eru látnir en lögreglan er með mikinn viðbúnað á svæðinu og segist lögreglan hafa náð tökum á ástandinu. Að minnsta kosti þrír fullorðnir voru skotnir til bana fyrir utan moskuna.

Orms­tunga og Óresteia með flestar til­nefningar

Rappsöngleikurinn Ormstunga fékk tólf tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, þetta árið. Harmleikurinn Óresteia fékk tíu tilnefningar og Galdrakarlinn í Oz er í þriðja sæti yfir fjölda tilnefninga með sex slíkar.

Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað

Kröfum Elons Musk, auðugasta manns heims, á hendur Sam Altman og gervigreindarfélaginu OpenAI, sem Musk og Altman komu að því að stofna á sínum tíma, hefur verið hafnað. Níu kviðdómendur komust einróma að þeirri niðurstöðu eftir þriggja vikna réttarhöld og vitnisburði beggja auðjöfranna.

Deilt um orð Hildar um „súkku­laðikleinuna“ Sönnu

Fyrrverandi ráðherra og formaður Samfylkingarinnar sakar oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um rasisma með því að kalla oddvita Vinstrisins „súkkulaðikleinu“. Mörgum þykja þessar ásakanir innihaldslausar enda sé orðræða um súkkulaðikleinur gömul á Íslandi og eigi ekkert skylt við kynþátt.

Enginn aug­ljós meiri­hluti á vinstri vængnum

Prófessor í stjórnmálafræði segir meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins vera líklegustu niðurstöðuna í Reykjavík, miðað við nýjustu kannanir. Hann segir Samfylkinguna með erfiðan farangur í farartaskinu eftir óvenju langa valdatíð og býst við mikilli spennu i kvöld.

Sjá meira