„Tekur menn misjafnlega langan tíma að ná taktinum sem er hérna“ Íslandsmeistarar Breiðabliks fóru á kostum í Bestu deild karla í knattspyrnu síðasta sumar. Þeir hefja titilvörn sína þann 10. apríl. Lykilleikmenn hafa horfið á braut og ljóst að liðinu bíður vandasamt verkefni ætli það sér að endurtaka leikinn. 20.3.2023 07:30
„Vorum klárlega betra liðið“ Marco Silva, þjálfari Fulham, sagði lið sitt hafa verið betra en Manchester United þegar liðin mættust í 8-liða úrslitum FA-bikarkeppninnar í gær, sunnudag. Silva, sem og tveir leikmenn Fulham, voru sendir í sturtu þegar Fulham var 1-0 yfir í leiknum. Gekk Man United á lagið eftir það og vann 3-1 sigur. 20.3.2023 07:01
Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Lögmál leiksins og Olís deild karla Fjórar beinar útsendingar eru á rásum Stöðvar 2 Sport í dg. 20.3.2023 06:01
Frammistaða kvöldsins ágætis búbót fyrir Gunnar Gunnar Nelson sneri aftur í búrið á bardagakvöldi UFC sem fram fór í O2-höllinni í Lundúnum á laugardagskvöld. Sigraði hann andstæðing sinn örugglega og var frammistaða hans valin frammistaða kvöldsins. Gefur það íslenska bardagakappanum nokkrar aukakrónur í vasann. 19.3.2023 23:30
Undanúrslitin klár: Man City fær B-deildarlið og Man United mætir Brighton Búið er að draga í undanúrslit FA-bikarkeppninnar á Englandi. Mancester City mætir B-deildarliði Sheffield United á meðan Brighton & Hove Albion mætir Manchester United. 19.3.2023 23:00
Stelpurnar okkar mæta Nýja-Sjálandi í Tyrklandi Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun mæta Nýja-Sjálandi í vináttuleik þann 7. apríl. Leikið verður í Tyrklandi. 19.3.2023 22:31
Dramatískur sigur Barcelona sem er komið með níu fingur á titilinn Barcelona tók á móti Real Madríd í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Gestirnir urðu að vinna El Clásico ætluðu þeir sér að eiga möguleika á að verja meistaratitil sinn. Allt kom fyrir ekki þar sem Börsungar skoruðu sigurmarkið í uppbótartíma, lokatölur á Nývangi 2-1 og titillinn svo gott sem mættur til Katalóníu. 19.3.2023 22:15
Juventus heldur í vonina um Meistaradeildarsæti Þrátt fyrir að fimmtán stig hafi verið tekin af liðinu þá heldur Juventus enn í vonina um Meistaradeildarsæti að leiktíðinni lokinni. Liðið vann gríðarlega mikilvægan 1-0 útisigur á Inter Milan í kvöld. 19.3.2023 21:50
Keflavík deildarmeistari | Valur fór létt með Grindavík Keflavík og Valur mættu ekki mikilli mótspyrnu í leikjum sínum í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Keflavík vann botnlið ÍR örugglega, 87-42. Þá vann Valur stórsigur á Grindavík, 92-66. 19.3.2023 21:00
Öruggur sigur Pérez og magnaður Verstappen komst á verðlaunapall Sergio Pérez, ökumaður Red Bull, kom sá og sigraði í Formúlu 1 kappakstrinum í Sádi-Arabíu. Samherji hans, heimsmeistarinn Max Verstappen, tókst á undraverðan hátt að enda á verðlaunapalli þrátt fyrir að ræsa fimmtándi. 19.3.2023 19:30